- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- Orkan og ÍBV
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann17. júlí 2008
Sá að það er búið að ráða nýjan þjáfara hjá kk. Veit einhver hvers vegna Gintaras var ekki áfram og hvernig líst mönnnum á nýja þjáfarann.
Einar
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann20. júlí 2008
List vel a hann vont ad missa hann ur yngra flokka starfi,Gintaras var einfaldlega of dyr fyrir felagid
dora
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann20. júlí 2008
Hvað eru margir farnir frá síðustu leiktíð og er von á einhverjum í liðið. ?
Hver er stefnan með þátttöku núna á að vera með bara til að vera með eða á að stefna á efstu deild. ?
NN
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann26. júlí 2008
Líst vel á að ísskápurinn taki við liðinu. Hann er léttur í skapi og hefur sannann eyjaanda í brjósti. Svo er hann uppalinn í íþróttamiðstöðinni, þannig að hann þekkir þar hvern krók og kima. Nú er lag að byggja upp og gera þetta á léttu nótunum, þ.e.a.s hafa gaman af hlutunum. Hann hefur einmitt sagt að hann vilji hafa þetta á eyjastíl, enda alltaf best.
Sjáumst á þjóðhátíð.
Guffi
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann11. ágúst 2008
Verður þú ekki með Guffi. Ég er sammála þér með Svavar og þú værir einmitt púslið sem vantar í spilið. Daði Páls er að æfa af krafti og kemur með svakalegt comeback!!
Zero
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann12. ágúst 2008
gott ad fa svavar, steini vitta er byrjadur a fullu og styrkir lidid.
sigo
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann12. ágúst 2008
Heyrst hefur að Elli Pé sé að moka rykið af skónum sínum. En þeir eru víst fléttaðir úr hampi og þykja mjög léttir og góðir.
Djókari
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann15. ágúst 2008
Ég er upptekinn við þjálfun hjá unglingaflokki FH og hef engan tíma til að sprikla í handbolta. Enda á að byggja þetta upp en ekki að leita í það gamla aftur og aftur. Horfum fram á veginn og gefum ungum og efnilegum strákum tækifæri til að standa sig.
Guffi
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann15. ágúst 2008
Þessum sem fara um 19 ára aldur þegar þeir eru loks klárir?
KLM
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann17. ágúst 2008
Sumir fara, sumir verða eftir, aðrir koma til baka. Þetta er erfitt en ef maður framleiðir marga leikmenn er alltaf möguleiki á góður liði. Þetta var hægt milli 1990 - 2000 að hafa frambærilegt lið skipað að mestum hluta heimamönnum, af hverju ekki núna?
Guffi
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann17. september 2008
Nennir einhver að setja hérna inná hvernig æfingaleikirnir fóru um helgina? Voru þetta ekki Grótta og Afturelding?
Já og svo er ÍBV spáð 5. sæti í 1. deild af 8 liðum. Vona að stefnan sé sett hærra en það;)
Athygli vekur að kvennaliðinu er ekki spáð sæti, þrátt fyrir að taka þátt í vetur.
Bjarni Ben
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann17. september 2008
Gleymið þessu síðasta, ÍBV er víst í 2. deild í kvennaboltanum.
Bjarni Ben
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann18. september 2008
Ég er alveg sammála Bjarna Ben með þetta. Umfjöllunin er ekki ýkja mikil hérna á íbv.is. En leikirnir gengu ekki eins vel og menn hefðu viljað. Spiluðum á móti Gróttu á föstudaginn og endaði sá leikur 30-20 fyrir Gróttu. Á laugardeginum spiluðum við á móti UMFA, ekki byrjaði sá leikur vel og heimamenn komust í 8-1, en þá vöknuðu menn og réttu aðeins úr kútnum en leikurinn tapaðist. Leikmenn voru: Kolli, Frikki, Grétar, Vignir, Binni Kalli, Siggi Braga, Pálmi Harðar, Daði Páls (spilaði ekkert vegna meiðsla í vinstri öxl), Benni, Leifur, Sindri Ólafs, Hjalti Páls og Bragi. Leikmenn sem vantaði: Sindra Haralds, Davíð Þór.
Benedikt Steingríms
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann19. september 2008
Vantar alla umfjöllun um handboltann inná þessa síðu. Vill benda á það að IBV er ekki einungis fótboltafélag. Er ekki einu sinni kynning af leikmönnum liðsins sem er gersamlega óásættanlegt. Hvernig væri líka að fara uppfæra myndir inná síðunni, ætti ekki að taka gríðalegan tíma. Mynd af Íris Sæm sem er löngu hætt og mynd af Beló stökkva inn úr horninu fyrir þremur árum. vill benda á það að hann hefur verið í tveimur félögum síðan að þessi mynd var tekinn.
Koma svo leggið smá metnað í umfjöllun handboltans og áfram ÍBV !
OS
Hvernig líst mönnum á nýja þjálfarann19. september 2008
Til baka...
ÍBVfan.is mun vera með umfjöllun um handboltan í vetur og verður leikmanna kinning frá og með morgundeginum og síðan munum við fylgjast með deildinni í vetur ásamt fleyru endilega fylgjast með.
Við verðum með fréttir af leiknum við ÍR í kvöld.
IBVfan.is













