ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
2008-200923. apríl 2008
Langar aðeins að spyrjast fyrir og um leið koma af stað smá umræðu um næst vetur. Hvernig er staðan? Verður telft fram liði á næsta ári, þá meina ég karla eða kvenna ? vita menn hverjir eru að fara, hverjir verða áfram osfr. Leiðinlegt að þurfa að vera alltaf að velta þessari spurningu upp... en svona er þetta bara.

Væri líka gaman að spyrja hvort einhver hugmynd sé uppi um að setja handboltaakademíu af stað... það hefur komið vel út á Selfossi.
Handball fan
2008-200929. apríl 2008
veit um marga leikmenn sem eru á leið upp á land í skóla en hef trú á því að hægt verði að ná í lið allavega í karla boltanum. Sindri Ólafs að koma heim og svo eru menn eins og Siggi braga og Sindri Haralds. Held að markmennirnir verði áfram veit ekki um Davíð Þór hvort hann geti spilað en svo má ekki gleyma Vigni og Binna kalla. Það yrði líka flott að fá Daða Pálsson en spurning um þjálfara mér finst vera kominn tími á Gintarass
áhugasamur
2008-200930. apríl 2008
Það átti nú að koma handboltaakademía, ég skráði mig allaveganna í hana í hittifyrra. Erlingur Richards átti held ég að sjá um framkvæmd hennar en ætli þetta hafi ekki verið blásið af þegar hann flutti...
Bjarni Ben
2008-200901. maí 2008
Nú er síðasti leikur á laugardaginn og þá er þessum vetri lokið. Það hefur mikið gengið á, en liðið var ekki tilbúið í haust enda var of lengi óvissa í fyrra sumar um hvernig liðið yrði og jafmvel hvort það yrði lið. Nú væri gott að fá ferskt blóð í ráðið og rétti tíminn að koma til starfa. Um að gera ef einhver hefur áhuga að láta vita af sér.
Maggi Braga
Til baka...