- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- Skipurit
- ÍBV gegn einelti
Nýjast á hliðarsíðum

Gleðilegt nýtt ár
http://www.dalurinn.isVíti í Vestmannaeyjum
http://www.shellmot.is
Pæjumót TM 2012
http://paejumot.ibv.is
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.
http://www.eyjamenn.is
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Hvöss norðanátt20. nóvember 2007
Siggi Braga segir að ástæðan fyrir lélagu gengi til þessa sé lélegt harpix og óhagstæðar vindáttir ( á að vera grín ). Svo það hlýtur að hafa verið hvöss norðanátt í kvöld sem ekki passaði við spilamennskuna hjá liðinu, því án alls gríns þá er eitthvað mikið að þegar leikur tapast með 27 marka mun og það í efstu deild. Á ekki að fara að girða sig í brók og fara að sína einhvern árangur. því þetta er orðið hálf svekkjandi á að horfa. Það þarf eitthvað að fara að ske ef þetta á ekki að enda með að karlahandboltinn í meistaraflokki verði lagður niður eins og kvennaboltinn. Koma nú leikmenn og allir stuðningsmenn gerum allt sem hægt er til að bæta úr.
ÁFRAM........ÍBV....................JÁ...ÁFRAM..ÍBV.
Nonni
Hvöss norðanátt21. nóvember 2007
reka þjalfarann hlytur bera abyrgð a ömurlegri spilamennsku.
po
Hvöss norðanátt21. nóvember 2007
það væri eins vitlaust og hægt væri að gera að reka þjálfarann mér persónulega vill ekki láta detta það til hugar, það er bara eitthvað mikið að hjá íbv liðinu núna og það er ekkert vonandi það verur bara að gerast eitthvað mikið hjá liðinu. ÁFRAM ÍBV...
eyjamaður
Hvöss norðanátt21. nóvember 2007
Mér finnst þetta góð grein hjá nonna. Staðan er hræðileg á liðnu núna. Við erum að bugast. Þess vegna er gott að allir líti í eigin barm og spyrji sig "Hvað get ég gert til að breyta stöðunni". Þá sérstaklega leikmenn. Við höfum oft séð það svart í Eyjum en hjálpast að í gegnum erfiðleikana. Núna eiga strákarnir leik á laugardaginn hér heima gegn Aftureldingu.
Maggi Braga
Hvöss norðanátt21. nóvember 2007
Held að það væri ekki rétt í stöðunni að reka þjálfarann, hann gerði nú flotta hluti í fyrra. Þar sem ég er búsettur á Akureyri hef ég ekkert séð af liðinu í vetur (sem betur fer kannski) en það er alveg greinilegt að það er eitthvað sem þarf að breytast. Nú er vonandi að þessi skytta reynist happafengur og við innbyrðum 2 stig á laugardag, það er eiginlega nauðsyn. Ég vill líka hvetja alla Eyjamenn til að standa þétt við bakið á strákunum þótt það blási verulega á móti þessa dagana.
Áfram ÍBV.
Arnar Geir
Hvöss norðanátt22. nóvember 2007
Kannski að fyrirliðinn ætti kannski að sýna það að hann sé með smá vit í hausnum og hætta að fá þessi rauðu spjöld sem hann hefur verið að fá í vetur,sem eru orðin hvað í vetur 2 eða 3,og sérstaklega var spjaldið á móti Haukunum í alla staði heimskulegt og ekki fyrirliða sæmandi!
Old Boy
Hvöss norðanátt22. nóvember 2007
Mjög gott að sjá á blogginu hjá Magga hvernig hann segir frá veikindum Sigga og það skýrir kanski margt af því sem aflaga hefur farið hjá honum og það þar með bitnað á liðinu, en það má ekki kenna einum manni um hver staðan er í dag það þurfa allir leikmenn að líta í eigin barm og reyna að bæta úr. Og eins áhorfendur við verðum að standa saman allir sem einn og gera allt til að hlutirnir fari að ganga eins og best verður á kosið því við vitum að það býr mikið í þessu liði, en það þarf að fara að hafa fyrir hlutunum og sýna ótakmarkaða baráttu þá er ég viss um að þetta kemur og vonandi að nýji leikmaðurinn verði til þess að hlutirnir fari að ganga upp. Sýnum í næsta leik að vilji er allt sem þarf.
ÁFRAM..ÍBV........................
Nonni
Hvöss norðanátt24. nóvember 2007
Já það er sko hvöss norðanáttinn þessa dagana já ÍBV. Auðvitað er þetta engum einum að kenna hvernig gengi liðsins er þessa dagana, menn verða auðvitað allir að líta í eigin barm. Ég er búinn að sjá seinustu tvo leiki hjá íbv og þeir hafa verið mjög slakir. Það er algjört andleysi i liðinu. Menn nenna ekki að berjast og það er ömulegt að horfa á Eyjamenn verða niðurlægðir með 25 mörkum. Þar sem menn nenntu ekki að bakka í vörn, spiluðu ógagaðan leik og voru gjörsamlega útá þekju. Eg er ekki að segja að við eigum að vinna lið eins og Hauka og Stjörnuna. Það yrði kraftaverk miðað við leikmannaskipan liðanna. Enn við vitum það að eyjamenn eru þekktir fyrir að berjast, enn það vantar sko mikið upp á það... það mjög mikið.
Eg veit ekki hvort menn séu að bíða eftir því að þessi útlendingur komi og reddi öllu.. en hann þarf að vera mikill kraftarverkamaður til þess að gera það.. en auðvitað vonum við að hann eigi eftir að styrkja liðið.
Lykillmenn hafa verið að spila langt undir getu. Leikmenn einsog Gretar og siggi braga. Þeir menn sem hafa staðið upp úr eru guttar einsog Binni Kalli og Vignir Stefáns sem hafa komið skemmtilega á óvart og eru vaxandi með hverjum leik.
Það er auðvitað mjög slæmt að missa Sigga Braga út í næstu tvo leiki. Hann er mjög mikilvægur innan sem utan vallar fyrir liðið. Hann hefur átt við erfið veikindi að stríða sem hefur hrjáð honum mikið. En þessar brotvísanir eru óafsakanlegar í alla staði. Fyriliði liðsins á ekki að haga sér svona, það er hvorki sómi fyrir hann né liðið. En eg veit að hann iðrast þess og mun vonandi koma sterkur inn aftur.
Ef við spilum áfram svona er nokkuð ljóst að við eigum ekki eftir að vinna leik í vetur. Núna þarf bara að spýta í lófana og þjappa sér saman. Við vitum vel að við geTum staðið í mörgum af þessum liðum og halað inn stigum.
Auðvitað verðm við að spyrja sjálfan okkur hvort Gintaras sé að gera rétta hluti með liðið. Eg er ekki að segja að það eigi að reka hann en maður setur spurningarmerki um leikskipulag sem hann spilar... eg er enginn sérfræðingur i þessum fræðum enn eitt sem eg vill leggja herna fram að við verðum að spila agaðan leik gegn öllum þessumm liðum sem við spilum á móti. Við náum engum hraðaupphlaupum meðan önnur lið skora um helming sinna marka úr hraðaupphlaupum. Eg vildi spila mjög agaðan sóknarleik, spila langar sóknir .til þess að reyna að stoppa öll þessi hraðaupphlaup sem við fáum á okkur. Þetta gengur ekki upp einsog núna að vera að slútta eftir 20-30 sekúndur. Það er bara ávísun á eitt að tapa stórt og það mjög stórt eins og við sáum gegn stjörnunni.
Þetta eru allt ábendingar sem eg varð að koma frá mér.. eg get sagt að eg skammaðist mín hálpartinn fyrir að vera stuðningsmaður ÍBV á leiknum gegn stjörnunni.
Þetta er langt frá því að vera búið en við vonum að þetta komi allt með hækkandi sólu.
Áfram ÍBV.....
kalli haraldss
Hvöss norðanátt24. nóvember 2007
Hún er víst búin að snúa sér blessuð norðanáttin...fyrstu stigin eru komin í hús og vonandi að þetta sé upphafið að betra gengi liðsins. Áfram ÍBV
pálmi harðar
Hvöss norðanátt24. nóvember 2007
Það eru leikmenn sem ákveða að slútta sóknum senmma en ekki þjálfarar,þjálfarar setja upp leikskipulagið og síðan er það leikmannana að framfylgja því og kannski eru einhverjir samskiptaörðuleikar í gangi!!
Old Boys
Hvöss norðanátt24. nóvember 2007
Til baka...
Til Hamingju strákar með sigurinn í dag. Það er gott að vita að menn eru með hjartað á réttum stað og gefast ekki upp þótt að þessi blessaða norðan hátt hefur verið nokkuð sterk. Það eina sem aðdáendur vilja er að sjá sína menn gefa sig alla í hvernig leik en það er ekki hægt að ætlast til meira.
Ef illa gengur þá eiga menn ekki að fara að verkenna sjálfum sér og fara að hengja haus. Betra er að hætta að horfa á stigatöfluna og berja sér á brjóst og halda áfram.
p.s það skiptir engu máli hvort sókn er lengi eða stutt uppá hvort að menn fá hraðaupplaup á sig. Menn verða einfaldlega að slútta þeim vel og keyra svo strax til baka.
Siggi E













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011