ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Nýr leikmaður/menn25. október 2007
Hvernig er það er eitthvað verið að skoða með að fá nýjan leikmann eða leikmenn fyrir þann sem er að fara og er einhver möguleiki á að það hafist áður en leikmannaskiftaglugginn lokar 1.nóv, því hann opnar ekki aftur fyrr en í janúar. Hver er staðan ? ÁFRAM....ÍBV.........................
Nonni
Nýr leikmaður/menn29. október 2007
Við höfum verið að reyna að fá Úkrínska örvhenta skyttu sem var að leika í Úkraínu hjá liði sem var í evrópukeppninni og hefur lokið keppni þar. Það eru önnur lið á eftir honum sem sennilega eiga peninga, en við höfum lítið bolmagn. Skýrist á morgun, en ég er ekki bjartsýnn. Svo opnar gluggi í Janúar.
Maggi Braga
Nýr leikmaður/menn01. nóvember 2007
er Janis farinn í ÍR?? Fór hann ekki frá ÍBV út af því að hann var með heimþrá?
asdf
Nýr leikmaður/menn01. nóvember 2007
Janis er farinn í ÍR
Haukur
Nýr leikmaður/menn01. nóvember 2007
ÍBV og Janis gerðu samkomulag um að Janis færi og það var með fullri sátt okkar að hann færi í ÍR. Nú er komin nýr leikmaður í hans stað. Sá er Úkraínumaður, örvhentur og að okkar mati maður sem hentar okkar hóp betur. Janis á samt örugglega eftir að standa sig vel hjá ÍR.
Maggi Braga
Nýr leikmaður/menn01. nóvember 2007
Já enda engum greiði gerður að hafa óhamingjusaman leikmann innborðs. Varðandi leikinn í gær þá fannst mér gaman að sjá baráttuna í ungu liði ÍBV. Auðvitað komu kaflar þar sem reynsluleysi spilaði svolítinn kafla en þeir neituðu þó að gefast upp. Og vonandi eiga strákarnir eftir að ná sér á strik og þessi nýja skytta muna hjálpa til við það.
Sigurður Oddur
Nýr leikmaður/menn01. nóvember 2007
Er Janis að fara frítt til ÍR?? Fær ÍBV ekki einhverja greiðslu frá ÍR, þar sem Janis er bara 21 árs þá hlýtur ÍBV að hafa þurft að borga einhverjar bætur fyrir hann. Mig langar bara að vita hvort ÍBV fái eitthvað til baka. Kv. Bjarni
Bjarni
Nýr leikmaður/menn01. nóvember 2007
Við fáum ekki greiðslur fyrir hann. Þar sem við komumst að samkomulagi um að rifta samningi. En við komust hjá því að borga honum skaðabætur. Spurningin var hvort við hefðum átt að halda honum. En við tókum þá ákvörðun að peningunum væri betur varið í annann leikmann.
Maggi Braga
Nýr leikmaður/menn01. nóvember 2007
Held að það hafi verið mjög góð ákvörðun. Vonandi að þessi nýji leikmaður komi sterkur inn í liðið og reynist okkur vel. Hlakka til að sjá þá á móti Fram. Liðið átti víst að vinna leikinn heima hefur maður heyrt þannig að það er um að gera að sýna sitt rétta andlit og hirða 2 stig í Safamýrinni. Kv Rikki
Rikki
Nýr leikmaður/menn02. nóvember 2007
Það verður annað lið sem kemur inn í þennan leik á móti Fram (og bara allt framhaldið). Nýji leikmaðurinn, Siggi Braga og Silvinas koma allir inn aftur.
Það er auðvitað snilld að horfa á þessa markmenn okkar sem eru búnir að vera bestu menn liðsins fram að þessu, og ekki átti maður von á því svona strax á þeirra fyrsta tímabili í úrvalsdeild. Nú fer Leifur í hornið sem er hans staða, Sindri verður betri með hverjum leik (enda formið að koma ;-) )Gintaras kemur auðvitað með mikla reynslu inn í liðið ofl. Ég er bjartsýnn á framhaldið... við berjumst áfram, áfram ÍBV
KLM
Nýr leikmaður/menn02. nóvember 2007
Kiddi Gogga og Gintaras eru að vinna á fullu við það að fá dvalarleyfi fyrir nýja leikmanninn. Tek það skýrt fram að það er ekki eitthvað sem gerist í snarheitum. Vonandi tekur það sem skemmstan tíma, en það verður tæplega fyrir næsta leik.
Maggi Braga
Til baka...