ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Janis að fara23. október 2007
Ég er nú ekki alveg að ná þessu að vera að senda manninn heim!!! hverjir eiga að spila þessa leiki hjá ibv í vetur!!! hefði nú frekar haldið að það þyrfti að bæta við mannskapinn frekar en að senda leikmenn heim.Við erum með alltof fáa leikmenn í þessu liði og hvað ef einhverjir fara nú í meiðsli vitum nú þegar að Siggi braga hefur verið tæpur og Sigþór einnig og svo er Grétar meiddur. Þannig að maður er mjög ósáttur með þessa ákvörðun
FN
Janis að fara23. október 2007
Ég hef ekki trú á öðru en að forráðamenn lisins séu að leita að liðsstyrk í hans stað. Held að það sé nú samdóma álit að hann var ekki að standa sig og því væri peningunum betur varið í annan leikmann. Svo ef það vantar leikmenn þá er ég alveg til í að koma í vörnina og sjá um að fá gulu og rauðu spjöldin :)
Sigurður O.
Janis að fara23. október 2007
Sammála Sigurði varðandi Janis og hans spilamennsku. Held að það myndi koma alveg jafnmikið útur því að hafa Binna Kalla þarna í skyttunni sem er ungur og óreyndur en hefur alla burði til að verða klassaleikmaður. Hins vegar þurfa strákarnir liðstyrk til þess að halda sínu sæti. Þeir misstu 4 úr byrjunarliðinu sem var í fyrra (Svavar, Erling, Remi og Jóa Markmann) og fengum 3 í staðinn (Nikolaj, Janis og Silvinas). Liðið þarf 2 leikmenn og þá helst leikmenn til að spila fyrir utan. Nikolaj er allur að koma til og Silvinas er sprækur þegar hann heldur sér inná vellinum. Svo má ekki gleyma Davíð Þór sem er allur að koma til og gæti verið mikilvægur liðinu eftir áramótin og það sama má segja um Þorgils Orra. en eftir áramót gæti verið of seint, spurning að reyna að blikka Erling og Svavar til þess að spila með, það vantar reynsluna sem þeir eru með. ÁFRAM ÍBV.........
asdf
Janis að fara23. október 2007
Þetta var ekki auðveld ákvörðun. Það var ekki bara að okkur fannst ekki koma nóg útúr Janis, sem var markahæsti leikmaður Lettnesku deildarinnar í fyrra. Heldur virtist sem hann væri ekki að una sér hér og var mjög daufur. Það hafði áhrif á hópinn. Hann var keyptur sem burðarás liðsins. Það var betra að semja við hann núna og eiga þá fjárhagslega möguleika á að finna annan. Við vissum fyrirfram að þetta yrði erfitt tímabil og það kom á daginn. En það má segja að allt sé búið að dynja á okkur. En það eru líka ljósir punktar sem hafa komið okkur á óvart, t.d. markvarslan hefur verið mjög góð. Þar erum við með tvo átján ára peyja sem eru duglegir að æfa og það hefur skilað sér. Við höfum látið mótlætið fara í taugarnar á okkur og fengið leikbönn sem hafa vegið þungt. Leikmenn eru búnir að funda um sín mál og eru ákveðnir að laga sína hlið. Verðum við því að ná í gömlu góðu Eyja-bjartsýnina hún hefur oft hjálpað. Eitt að lokum, stuðningsmenn eiga hrós skilið fyrir að yfirgefa ekki strákana á erfiðri stund, fólk hefur stutt strákana vel á leikjum. Meira að segja hefur fjölgað í Krókódílunum síðustu daga.
Maggi Braga
Janis að fara24. október 2007
Þetta var eina vitið að senda þennan gæja heim. hann gat akkurat ekki neitt og var víst slæmur mórallslega líka. vonleysið algjört hjá honum. Eg sá leik á laugardaginn á móti val. hann var ekki eins slæmur eins og tölurnar segja. við mistum sigga útaf mjög snemma, lettinn og grétar voru heldur ekki með. vörninn var mjög fín og markværslan frábær. Enn sóknarleikurinn var mjög dapur og tilviljanakenndur og skoruðu valsmenn megin hluta sinna marka úr hraðaupphlaupum. Svo við verðum að byggja okkar leik á vörn og góðri markvörslu. Það er líka spurning hvað stjórninn ætlar að gera. Okkur vantar mjög mikið sterkann sókarmann, því við erum með ágætismenn til þess að hjálpa sterkum sóknarmanni(siggi, sindri, leifur o.fleiri). Eg veit það er ekki auðvelt að fá svoleiðis mann og auðvitað kostar það pening. en það er dýrt að vera fástækur og detta niður um deild, og þurfa að byggja liðið aftur upp. fyrir utan það er erfiðara fá sterka bakhjarla. Eg stend fyllilega með stjórninni og hafa þeir verið að vinna mjög vel að mörgum málum "en betur má en duga skal". Núna verða ungu peyjarnir að rífa sig upp og spila með hjartanu. með leikgleði og baráttu getum við náð óvæntum úrslitum. áfram ÍBV
kalli haraldss
Til baka...