ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Ekki góður leikur hjá ÍBV06. október 2007
Afturelding tók á móti ÍBV í úrvalsdeild karla í handbolta að Varmá í gær kvöld. Leiknum lauk með öruggum sigri Mosfellinga 42 - 29. Staðan í hálfleik var 19:11 Aftureldingu í vil. Hilmar Stefánsson var markahæstur hjá Aftureldingu með 10 mörk. Hjá ÍBV var Janis Grisanovs markahæstur með 11. Afturelding er í fimmta sæti með 4 stig en ÍBV er á botninum með ekkert stig. Eyjamenn eru enn án stiga í deildinni og veitir það ekki á gott en 3 eyjamenn fengu að líta reisupassan áður en að leiknum lauk. ,,Ég spyr bara hvar þessum mönnum var kennt að spila handbolta." Gintaras, þjálfari ÍBV, var ósáttur við dómgæsluna ,, Oft var Afturelding að brjóta á okkur eins og við á þeim en samt fengu þeir aldrei brottvísanir. Umfjalanir um handboltan eru á www.ibvfan.is ásamt beinum útsendingum.
ibvfan.is
Ekki góður leikur hjá ÍBV06. október 2007
Hvað er í gangi ? er enginn metnaður í þessum mönnum þrír reknir útaf í N1 leiknum og svo að tapa fyrir b liði Aftureldingar í bikarnum, hey come on. ÁFRAM ÍBV......
nonni
Ekki góður leikur hjá ÍBV15. október 2007
Hvað er að gerast hjá ÍBV? Ég er ekki að tala um árangur liðsins heldur þessa ágætu síðu, nýjasta frétt undir handbolti síðan í sept, er það ásættanlegt ?
Birgir
Ekki góður leikur hjá ÍBV15. október 2007
Mjögmjög dapurt... Einar Hlöðver gerði ágætlega í sumar með því að setja inn nokkrar fréttir og viðtöl. Skoðaðu líka myndina sem birtist á forsíðu, þar er Beló (lék síðast 2005) Elín og Íris (léku líka 2005) og síðan Guðbjörg Guðmanns og ég man ekkert hvenær hún hætti í íbv. Engin spurning að ÍBV á að fá einhvern mann í þetta, borga einhvern 20. þús kall á mánuði og gera þetta vel. Er ekki einhver skolapeyinn sem vantar aukapening og myndi bara finnast þetta skemmtilegt. Ég held að við séum með lélegustu heimasíðu af öllum liðum í deildinni, sem og fótboltanum!!!! Hvernig væri að aðalstjórn lagaði þetta.
KLM
Ekki góður leikur hjá ÍBV15. október 2007
Kiddi Gogga hefur nú verið duglegur að uppfæra þegar hann hefur verið við, en mér skilst að hann sé búinn að liggja og strjúka á sér kviðinn á Tenerife síðustu vikurnar og býst maður við honum sterkum inn. Bibbi hefur verið duglegur líka en örugglega m jög busy í hinum ýmsu málum í félaginu. Hlöbbinn var auðvitað mjög öflugur í sumar og fær hrós fyrir tíð innlegg. Ég tek undir það að góð síða skipti félagið máli og ég tala nú ekki um ef menn eins og ég læra að halda kj. þegar liggur illa á þeim. :-). Það væri gott framtak að hressa aðeins við síðuna. Það eykur áhuga á félaginu og starfinu þar. Hún hefur verið að lifna við, en ég held að það sé meiri eftirspurn :-)
Jón Óskar
Ekki góður leikur hjá ÍBV15. október 2007
Tók að gamni saman smá statistik yfir fréttaflutninginn í sumar, þá á ég við tímabilið frá miðjum maí til 1. september, áður en handboltatímabilið fór að rúlla og snéri því mest að fótboltanum. 139 fréttir og viðtöl fóru inná síðuna. Það gera 1,32 innlegg að meðaltali á dag eða rúmlega 9 innlegg á viku (laugardagar og sunnudagar meðtaldir). 19 innlegg snertu Unglingaráð, 96 innlegg snerti fótboltann, 15 innlegg vörðuðu handboltann, 6 um aðalstjórn og 3 vörðuðu Þjóðhátíðina. Ég ætla nú að vona að það flokkist aðeins meira en bara "nokkrar" fréttir og viðtöl :-) Það væri gaman ef síðan kæmist til lífs aftur og vona ég svo sannarlega að hún geri það.
Einar Hlö
Ekki góður leikur hjá ÍBV15. október 2007
Vill minna á heimasíðuna www.ibvfan.is strákarnir þar eru duglegir að koma með fréttir af Handbolta og Fótbolta endilega kíkja við þar helling nýtt að koma þar inn.
Stuðningsmaður ÍBV
Ekki góður leikur hjá ÍBV16. október 2007
Það má fara milliveg í þessu bloggi í sumar, sumt var gott en sumt var of mikið af því sama t.d. man ég eftir 4 bloggum um sama leikinn, það mætti vera meira um unglinga og barna starfið, en í sumar var maður ístarfi við þetta ásamt öðru og auðvitað þyrfti það líka að vera þannig yfir veturinn, nú er Hilmar að leysa Kidda af er ekki bara spurning um að ráða hann til starfa þarna við að halda út heimasíðunni ásamt fullt af öðrum störfum sem hægt væri að láta hann vinna fyrir félagið
jósí
Ekki góður leikur hjá ÍBV17. október 2007
Ég held ég sé að fara með rétt mál þegar ég segi að Einar Hlöðver var ekki ráðinn til að skrifa fréttir hér inn, allavega ekki fyrir barnastarfið en þó gerði hann það stundum. Einnig voru hér leikmannakynningar og margt fleira skemmtilegt. Ég hef allavega aldrei séð síðuna eins lifandi og í sumar og hann á hrós skilið fyrir það:)
eyjar
Ekki góður leikur hjá ÍBV17. október 2007
mér finnst þessi síða öll að vera að koma til og eiga Einar, kiddi og þeir sem hafa verið að setja inn fréttir heiður skilið. Það er líka spurning um að fá fleirri menn(konur eru líka menn samkvæmt símaskrá) til þess að koma inní þettta. Ef einhverjir hafa til dæmis áhuga á einhverju ákveðum flokk eða félagstarfi og er tilbúinn að gera 1 til 2 greinar í mánuði um flokki, þá hlýtur það að vera hægt að henda því hérna inn. Bara smá hugmynd Það er oftast foreldraráð fyrir hvern flokk, hvernig væri að einhver í því ráðum gera einn pistill um sinn flokk(1 sinni í mánuði), hvernig gengur, stemninginn, fjöldi eða bara hvað sem er. Þarf ekki að vera langt og fái að hafa þetta hér.
SiggiE
Til baka...