ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Úrvalsdeild04. september 2007
Nú þegar liðið er komið í efstu deild væri gott að fá smá upplýsingar um liðið nú þegar íslandsmótið er að fara að hefjast. Hverjir eru farnir og hverjir eru komnir og eins hvernig mönnum lýst á veturinn framundan, er liðið nógu sterkt til að halda sér í efstu deild ? vonandi og þá er ekki sýst áríðandi að áhorfendur mæti vel á leikina og hvetji strákana til sigurs. ÁFRAM.ÍBV.......ALLTAF..OG.....ALSTAÐAR....OG ....LÍKA...Í...FÓTBOLTANUM.
Nonni
Úrvalsdeild07. september 2007
Þeir sem eru komnir eru Silli alhliðaleikmaður frá Litháen, Janis skytta frá Lettlandi, Nikki línumaður frá Rússlandi. Þorgils Orri. Davíð Þór og Sigþór verða með okkur í vetur og eru þeir á fullu að koma sér í form og einnig ætlar Sindri Ólafs að vera með ÍBV liðinu en hann Þorgils og Daði Ólafs verða á æfingu á fastalandinu þar sem þeir stunda nám. Þetta verður spennandi og líka strembin vetur og mun því reyna mikið á liðið og á reynsluboltana okkar þá Sigga Braga og Sindra Haralds
Óskar Freyr
Úrvalsdeild07. september 2007
Hef heyrt það að Daði Páls ætli að vera með í vetur. Vona að það sé rétt, frábær leikmaður á árum áður og kæmi með reynsluna sem vantar. Myndi auk þess "lækka" meðalþyngd liðsins, enda í toppformi.
Zero
Úrvalsdeild10. september 2007
heyrði að davíð hallgríms ætlaði að dusta rykið af sínum skóm i vetur .ótrúlegur leikmaður á sínum tíma ,minnti mann alltaf a sigga sveins með þrumuskotunum sínum og baneitruðum stoðsendingum !!!! griðarlegur styrkur ef satt reynist !!
magni
Úrvalsdeild10. september 2007
Skora á bæjarstjórann, Elliða Vignisson að halda uppi orðspori fjölskyldunnar og draga fram skóna að nýju þar sem stærsti dvergur jarðríkisins, bróðir hans, þurfti að leggja skóna á hilluna. Auk þess yrði það í fyrsta sinn sem bæjarstjóri væri að spila handbolta í efstu deild og klárt mál að hann myndi toppa Inga Sig, sem passaði sig.....ekki.
Haukur
Úrvalsdeild10. september 2007
Hef tekið eftir því að það eru ekki komin félagaskipti fyrir nýju leikmennina, er eitthvað vandamál með það eða er kerfið bara svona seinlegt? ÁFRAM.ÍBV..................................
Nonni
Úrvalsdeild13. september 2007
Sindri Ólafs og Þorgils Orri komnir með félagsskifti í ÍBV. Hvernig er með erlendu leikmenninna þarf ekki að tilkynna þá, fyrsti leikur er á laugardag.
Jónsi
Úrvalsdeild13. september 2007
Hlynur Sigmarsson er að aðstoða okkur og þetta verður allt klárt.
Maggi Braga
Úrvalsdeild15. september 2007
það er líka búið að fresta leiknum í handboltanum til morguns, hann á að vera kl 5 á morgunn
eyjamður
Til baka...