ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Mér hefði fundist við hæfi að hér á síðunni hefði komið fréttir af því að Heiða Ingólfsdóttir (Arnarssonar) væri að standa sig vel með handboltalandsliði u-17 á Ólimpíuhátíð Æskunnar sem fram fer í Belgrad í Serbíu. Þar sem það virðist vera að skrifstofa félagsins sé að setja aukin kraft í skrif hér á síðunni, en einhvern veginn virðist lítið vera sett inn þegar handboltinn á í hlut og hvað þá kvennahandboltinn. Það finnst mér skrítið miðað við yfirlýsingar aðalstjórnar að hlúa vel að yngri flokkum handboltans.
Hlynur Sigmarsson
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Það er nú einu sinni þannig að það er ekki stundaður handbolti á sumrin og þess vegna er kannski ekki verið að pæla mikið í fréttaflutningi yfir sumartímann um handboltann, það segir sig bara sjálft. Ef eitthvað svon er að gerast, eins og þú talar um Hlynur með hana Heiðu, þá er bara minnsta málið að senda okkur tölvupóst um málið og við myndum þá að sjálfsögðu setja frétt um það á netið. Það þjónar engum tilgangi að koma hingað inná spjallið og skammast, þér hefði verið nær að senda okkur bara póst um málið og þá hefði það verið afgreitt eins og skot.
Einar Hlö
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Gagnrýni er góð ef hún er málefnaleg og í þessu tilviki er hún það hjá Hlyn. Einnig sú gagnrýni sem er af jákvæðum toga en það er að tíðni frétta og virkni á síðunni hefur aukist og örugglega mikil aukning heimsókna á hana. Einar Hlöðver er að gera góða hluti með síðuna og vil þakka honum það.
Jón Óskar
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Sælt verið þið fólkið, Tek það fram að ég ætla í fyrsta lagi að hrósa því fólki sem hefur haldið síðunni virkri í sumar og er það þarft verk og glæsilegt. Eins og Jón Óskar segir er það nauðsynlegt til að síðan fái að lifa og verði öflug. Menn eins og Jón Óskar, Gilli Hjartar og nú Einar Hlöðver hafa haldið henni gangandi. En við þurfum að reyna að finna farveg fyrir hana að það komi ekki góðir tímar og síðan slæmir, þar sem það er allt of algengt hjá okkur og ég tek það á mig á þeim tíma er ég stóð í þessu. Ég hef hingað til oft rætt þetta við stjórnarmeðlimi og starfsmenn aðalstjórnar að hún sé virkari og að síðan verði beinskeittari frá skrifstofunni hálfu og að hún beri ábyrgð á henni og haldi henni lifandi. Þ.e.a.s. þeir starfsmenn er starfi beri ábyrgð á að síðan sé lifandi, hvort sem er eður þeir skrifa eða sjái um að sé skrifað á hana. T.d. það þegar krakkar frá okkur eru að leika eða fara til æfinga með yngri landsliðum. Ég er t.d. ekkert endilega að fylgjast með því þegar að allir krakkar spila með landsliði eða afreka eitthvað. Held að skrifstofan ætti miklu frekar að fylgjast með því og uppfæra það á síðuna og gera þessu krökkum nokkuð hátt undir höfði, hvort sem um er að ræða fótbolta eða handbolta. Þetta eru jú börnin okkar og framtíðin okkar vonandi einnig. Ég hvet því enn og aftur skrifstofuna/aðalstjórn til að finna síðunni fastari og betri farveg, þar sem eflaust fer EH með minnkandi sól og þá verður síðan e.t.v. komin í sama far aftur. Með kveðja, Hlynur Sigmarsson
Hlynur Sigmarsson
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Vil sjá gagnrýni en ég er ekki sammála Jóni Óskari að það sé málefnaleg gagnrýni þegar menn skammast á spjallinu í staðinn fyrir að hreinlega benda okkur á fréttirnar og við setjum þær inn. Við getum bara ekki vitað um allt sem er að gerast. Að öðru leyti tek ég undir allt sem Hlynur segir. Það er hins vegar þannig að stjórnarmenn, þjálfarar og framkvæmdarstjórar geta ekki sinnt síðunni eins og þarf til að vel verði. Þeir hafa nóg á sinni könnu. Ég ráðlagði mönnum hérna fyrir 2-3 árum að ráða mann í verkefnið, sem væri vefstjóri allt árið og að sjálfsögðu á launum, ekkert endilega á svimandi launum en það þarf að borga fyrir þetta því þetta er mikil vinna og það gerir þetta enginn frítt. En það var ekki hlustað á það, jafnvel tímdu menn því ekki, enda alltaf verið að spara. En þetta er spurning um metnað. Hefur félagið þann metnað sem þarf til á síðu sem þessari? Það kemur kannski í ljós þegar sumrinum lýkur, hver veit?
Einar Hlö
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Hvað er ekki málefnaleg gagnrýni? Er það þegar þú segir að ekki hafi verið gert neitt í að uppfæra lista með leikmönnum fótboltans eða þú segir að lítið sem ekkert hafi verið gert í að uppfæra undanfarið með fótboltann? Er það þegar ég segi að mér hefði fundist við hæfi að sagt yrði frá afrekum Heiðu? Ég get ekki betur séð en að nú hafi verið gerður skurkur í að hálfu skrifstofu ÍBV að uppfæra síðuna og fer það vel. En við megum ekki gleyma því að við eigum einnig handboltafólk og yngri krakka sem eru að standa sig vel. Ég veit t.d. að skrifstofa ÍBV fær upplýsingar um þá leikmenn sem valdir eru í landslið og til landsliðsæfinga. Það sem ég er að benda á að hvort ekki sé hægt að miðstýra því af skrifstofunni að setja það inn einnig. Þar sem ég sé og finnst frábært það starf sem hefur verið unnið í fótboltasíðunni í sumar, en við megum einnig segja frá okkar unga afreksfólki. Þar sem skrifstofan virðist nú geta sem betur fer sinnt síðunni betur en áður.
Hlynur Sigmarsson
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Afsakaðu Einar að ég tjáði mig á jákvæðum nótum. Sé að það er best að sleppa því. Mér finnst bara allt í lagi að gagnrýna hér á spjallinu og fannst Hlynur gera það málefnalega fyrir utan samsæriskenningu gegn handboltanum og ég notaði sjálfur tækifærið og hrósaði þér og bættri síðu. Over and out, gleðilega þjóðhátíð félagi en ég hef annað við tímann að gera en að svara fyrir það þegar ég er jákvæður (gerist nú ekki svo oft he he ).
Jón Óskar
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Jón Óskar: Það þýðir ekkert að fara í einhverja fýlu þótt ég hafi sagst vera ósammála þér. Þetta er bara þín skoðun, en ég er á annarri. Og Hlynur: í fyrsta lagi, barst ekkert inná borð skrifstofunnar um að Heiða væri í landsliðinu bara svo það sé á hreinu. Annars endurtek ég bara mín fyrri orð. Það hefði bara verið langeinfaldast að þú hefðir haft samband og sagt okkur af þessu og þá hefðum við sett þetta inn á síðuna. Og aftur endurtek ég, ef það á að sinna þessari síðu almennilega, þá þarf að ráða mann í þetta verkefni, það er svo einfalt. Ég, persónulega tók það að mér að sinna meistaraflokknum í sumar, þótt ég hafi sett hérna inn efni er tengist yngri flokkunum líka. Þegar sumarið er búið, þá kemur bara í ljós hver metnaðurinn hjá félaginu verður varðandi síðuna. Og ég vona svo innilega að menn séu tilbúnir að leggja í þetta sem þarf til. Með ÍBV-kveðju.
Einar Hlö
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Mér finnst nú Hlynur minn að hefðir getað sett þetta öðruvísi fram t.d. með því að hringja í Bibba eða Einar Hlöðver og beðið þá um að koma þessu á framfæri.Það er örugglega ekki það að þeir vilji ekki skrifa um þetta.Þetta eru önnum kafnir menn og hefur mér einmitt fundist ánægjulegt að lesa pistlana eftir Einar Hlöver hér á síðunni.Hann er góður penni og er sanngjarn í sínum skrifum.Hitt er annað að það er allt of lítið skrifað um yngri flokkana hér á síðunni,og spurning hvort eigi bara ekki að skipa ritara hjá foreldrum hvers flokks .Sá gæti séð um greinar og tilkynningar og fengið að koma inní Týsheimili til að skrifa inná síðuna,svona til að hafa þetta ritskoðað.Áfram ÍBV við öll allstaðar.
RB
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Alveg sammála með yngri flokkana og þetta er mjög góð hugmynd. Hafa ritara í foreldraráði hvers flokks sem þyrfti kannski ekki beint að skrifa fréttirnar sem slíkar , heldur senda vefstjóra punkta um leiki og mót og svo væri fréttin soðin saman og jafnvel bætt við viðtölum og myndum. Annars hef ég viðrað þá hugmynd að þjálfarar hvers flokks eigi hreinlega að taka þetta að sér því þeir eru alltaf "á svæðinu" og vita um allt sem gerist innan flokkanna. Þeir kæmu bara punktum og myndum áleiðis til þeirra sem skrifa og þeir setja þá saman einhvern texta.
Einar Hlö
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Anna Fríða þjálfari 6. flokks kvenna kom td. til mín í byrjun mánaðarins og bað mig að skrifa smá um góðan árangur 6. flokks kvenna á Landsbankamótinu á Sauðárkróki. Hún sendi mér nokkra punkta og mynd og fréttin fór svo strax inn. Er þetta ekki bara eitthvað sem þyrfti að koma í gagnið hjá félaginu? Að hafa þetta bara hluta af þjálfarastarfinu....?
Einar Hlö
Heiða að standa sig26. júlí 2007
Einmitt Anna Fríða stendur sig vel.Og ég er viss um að það væru t.d. margir foreldrar tilbúnir að koma með komment um gengi flokka.kk og kvk t.d á Stelpumótinu í Kópavogi,N1 mótinu á Akureyri sem var afskaplega skemmtilegt,og svona mætti lengi telja.2flokkur karla er með skemmtilega síðu þar sem Örn Hilmis hefur verið ómetanlegur í að skrifa um leiki ,úrslit,skemmtilegar uppákomur og síðast en ekki síst myndir.Þetta er oft bara spurning um að virkja fólk og fá það til að vinna með félaginu okkar.Þetta eru jú okkar börn ekki satt.
RB
Heiða að standa sig27. júlí 2007
Einar þú átt inni hjá mér einn bjór fyrir að segja mig vera kominn í fýlu líka :-). Þú færð hann í Dalnum félagi ef ég þekki þig í nýja gervinu. Mér líður bara stórvel og hlakka til Sandgerðis-ferðar í kvöld ;-).
Jón Óskar
Heiða að standa sig27. júlí 2007
Þigg bjórinn með þökkum, er það danskur Tuborg grön í gleri ? :)
Einar Hlö
Heiða að standa sig27. júlí 2007
What ever you want :)
Jón Óskar
Til baka...