ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
ÍBV vs. KR02. september 2010
Hvernig er það, verður aukaferð frá Eyjum eftir leikinn á móti KR þann 12. sept ?
Sigurjón Lýðs
ÍBV vs. KR02. september 2010
Er orðið fullt í hina? Eins gott ég festi mér miða!
BjarniBen
ÍBV vs. KR03. september 2010
Gæti trúað að það verði full þörf á að bæta við ferð eftir leik. Eins gott að tryggja sér miða í tíma...
Haukur
ÍBV vs. KR03. september 2010
Mikið væri æðislegt að vinna kr! Stuðningmenn þeirra virðast vera frekar sigurvissir og halda að ÍBV sé ekki mikil fyrirstaða. Vona að við sýnum þeim að þeir hafi rangt fyrir sér!! :) Sjálfsögðu er maður búinn að tryggja sér miða í dallinn. ÁFRAM ÍBV!! :)
Ólöf Ragnars
ÍBV vs. KR05. september 2010
Væri geggjað ef það væri hægt að fá ferð eftir leikin upp á land aftur Veit eitthver eitthvað um það eða ?
Orri
ÍBV vs. KR06. september 2010
eins gott bara að Herjólfur fari þennann daginn segji ég nú bara miðaða við síðustu fréttir hehe... annars eru 3 árgangsmót í eyjum þessa helgi (held ég) og vona ég að fólk lengi dvöl sína í eyjum og fari heim með síðustu ferð á sunnudegi eða fyrstu á mánudegi og sjái sér fært að styða okkar menn gegn ÍBV. Troðfyllum völlinn og látum í okkur heyra.
Gunnar
ÍBV vs. KR06. september 2010
http://krreykjavik.is/?page_id=5&forumaction=showposts&forum=1&thread=2902&start=0 Gaman að því hvað KR-ingar er nískir. Þeim finnst 3500 krónur mikið fyrir rútur fram og til baka, miði í Herjólf og á leikinn. Ég myndi glaður
Kjartan Vídó
ÍBV vs. KR07. september 2010
Herjólfur á að sigla eftir áætlun á sunnudag og er hægt að taka bátinn kl. 21:00 strax eftir leik. Skilst að það sé hægt að kaupa pakkatilboð með hammara og miða á leikinn með þessari ferð hjá ÍBV.
Jói Jó
ÍBV vs. KR07. september 2010
KSÍ hefur ákveðið að færa leikinn fram um 30 mín vegna birtuskilyrði og mun hann því hefjast kl. 17:30 á Hásteinsvelli.
Trausti Hjalta
ÍBV vs. KR09. september 2010
Sálfræðistríðið hafið. kr-ingar reyna að hafa áhrif á dómarann http://www.visir.is/article/20100909/IDROTTIR0101/750215487
Bigginn
Til baka...