- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- Skipurit
- ÍBV gegn einelti
Nýjast á hliðarsíðum

Gleðilegt nýtt ár
http://www.dalurinn.isVíti í Vestmannaeyjum
http://www.shellmot.is
Pæjumót TM 2012
http://paejumot.ibv.is
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.
http://www.eyjamenn.is
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
FYLKIR - ÍBV24. ágúst 2010
Við trónum ennþá á toppnum eftir þessa umferð sem er frábært. Nú þurfum við að fjölmenna á leikinn á sunnudaginn og hvetja okkar menn ! Það væri frábært ef við myndum ná uppi stemmningu eins og á blikaleiknum.
Sjáumst á sunnudaginn.
Áfram ÍBV!
Eyjamær
FYLKIR - ÍBV25. ágúst 2010
Já það er vonandi að fjölmennt verði á völlinn og við sjáum skemmtilegan fótboltaleik því ekki var hann skemmtilegur á þessum velli í fyrra!
Hef fulla trú á að strákarnir bjóði uppá skemmtilegan fótbolta á sunnudaginn
Hjördís
FYLKIR - ÍBV28. ágúst 2010
Aðalmálið er að liðið nái að leika betur en í undanförnum leikjum og taka einungis einn leik í einu. Við sem mætum á leikinn á morgun þurfum að vera með öflugan stuðning og vera jákvæð í garð liðsins eins og á Blikaleiknum. Sjáumst hress á morgun á Fylkisvelli.
Ingi Sig.
FYLKIR - ÍBV29. ágúst 2010
Einn leikur í einu er einmitt málið núna. Ekki missa sig í að spá í hvað getur gerst ef þetta og ef hitt. Kemst hins vegar ekki á Fylkisvöllinn én vona að þeir sem mæta verði liðinu styrkur í baráttunni. Hefðum þurft aukferð með Herjólfi heim í kvöld, löngu fullt í síðustu ferðina heim. Þess vegna kom ég heim í gær eftir glæsilegan sigur stelpnanna á Keflavík í undanúrslitaleik um laust sæti í Pepsi deild kvenna.
Geir Reynis
FYLKIR - ÍBV29. ágúst 2010
Tek hatt minn ofan fyrir strákunum að ná þessum sigri.. frábært..
Tom
FYLKIR - ÍBV29. ágúst 2010
Fullkominn leikur! Get lítið sagt annað. Vona að KR leikurinn verði jafn skemmtilegur fyrir aðdáendur ÍBV.
BjarniBen
FYLKIR - ÍBV30. ágúst 2010
Strákarnir eru bara lang-flottastir! Það er bara þannig :)
Ólöf Ragnars
FYLKIR - ÍBV30. ágúst 2010
Stuðningurinn sem strákarnir hafa fengið í síðustu tveimur útileikjum á sér ekki hliðstæðu í íslenska boltanum. Að 500-700 Eyjamenn séu mættir á útileiki leik eftir leik til að styðja við sitt lið er bara alveg ótrúlegt. Nú þurfa stuðningsmenn í Rvk og í Eyjum bara að sameinast gegn KR eftir tvær vikur. Allir til Eyja, ekkert mál!
Haukur
FYLKIR - ÍBV31. ágúst 2010
Til baka...
Sammála Hauki!
Ég er búin að panta mér far, get ekki hugsað mér að missa af þessu! :)
Hjördís













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011