ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
ÍBV-Grindavík23. ágúst 2010
Er mönnum bara öllum lokið eftir leikinn í gær? Hvernig væri að taka smá umræðu um tapleiki líka. Fannst leikmenn allt of slappir í gær. Það er vitað mál í svona roki að það verður ekkert boðið upp á 30 sendingar og svo mark. Við svona aðstæður verður þú að berjast og það gerðu Grindvíkingar. Okkar menn ætluðu greinilega að berjast en voru fljótir að detta í pirringspakkann þegar sendingar klikkuðu. En við erum samt sem áður í góðum málum en það má ekki mikið klikka enda KR-ingar í ágætis málum og FH-ingar neita að gefast upp. Nú þurfa Grindjánar bara að vinna Blikana aftur, þá tekur maður þá í sátt aftur.
Haukur
ÍBV-Grindavík23. ágúst 2010
Mér sýnist á viðtölum að menn hafi lagt upp í síðari hálfleikinn með eitthvað plan en svo gert eitthvað allt annað þegar inná völlinn var komið. Mér fannst Grindvíkingar bara vilja þetta meira. Við hengjum ekkert haus yfir þessu heldur mætum tvíefld í Árbæinn að viku liðinni er það ekki bara ? Áfram ÍBV !!
Jón Óskar
ÍBV-Grindavík23. ágúst 2010
Einfaldlega slakur leikur við erfiðar aðstæður og lítið meira um það að segja. Fannst við fara hrikalega illa með góð færi í fyrri hálfleik þegar menn þrumuðu boltanum yfir markið úr upplögðum færum. Seinni hálfleikur hvarf svo bara út í veður og vind án þess að við næðum að ógna verulega.
Geir Reynis
ÍBV-Grindavík24. ágúst 2010
Fín mæting á völlinn þrátt fyrir leiðinda veður. Ég held að enginn hafi búist við skemmtilegum fótbolta við aðstæðurnar sem leikurinn var spilaður í. Það vantaði hins vegar meira malt í okkar leikmenn, meiri grimmd. Dómarinn leyfði Grindvíkingum að nota olnbogann hægri og vinstri og í staðinn fyrir að taka hrautlega á móti þá einhvernveginn koðnuðu menn niður. Varamennirnir sem komu inná áttu einnig alla dapra innkomu að mínu mati, spurning hvort að þeir hafi verið nægilegar heitir í rokinu, orðnir stífir á bekknum? En næsti leikur gefur þrjú stig og þau taka strákarnir. Áfram ÍBV.
PMJ
Til baka...