ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Upphitun á 900 Grillhúsi fyrir leik ÍBV og Grindavíkur á sunndag20. ágúst 2010
ÍBV tekur á móti Grindavík í PEPSI-deild karla á sunnudaginn kl 18:00. Af því tilefni ætlar ÍBV ásamt Geira og hans fólk að gefa pylsur og pepsí á planinu við hlið 900 Grillhús(gamla Axel Ó) fyrir leikinn. Sérstök ÍBV tilboð verða á mat og drykk. Fjörið byrjar klukkan 16:00. Haldið verður svo á leikinn sem byrjar klukkan 18:00 og hvetjum við fólk að mæta tímalega á völlinn og styðja topplið ÍBV áfram í toppbaráttunni. Stuðingsmenn eru hvattir að mæta í hvítu og gera allt vitlaust i stúkunni. Fólk upp á landi er hvatt til að mæta á leikinn og nýta nýju samgönguleið okkar Landeyjahöfn en hægt er fara þrjár ferðir frá Landeyjahöfn á sunnudaginn klukkan 10:30, 13:30 og 16:30 og svo er hægt að fara frá Eyjum upp í Landeyjahöfn klukkan 22:30. ÁFRAM ÍBV!!
Trausti Hjalta
Upphitun á 900 Grillhúsi fyrir leik ÍBV og Grindavíkur á sunndag20. ágúst 2010
Frábært ég mæti á þetta.. en skora á menn að mæta tímanlega á völlinn.. var frábært að sjá stemmninguna 15 mín fyrir leik í Kópavoginum.
Jói Jó
Upphitun á 900 Grillhúsi fyrir leik ÍBV og Grindavíkur á sunndag20. ágúst 2010
Mæti klárlega. Flott að búa til fjör fyrir leik. Spurning síðan um að fylla stúkuna norðan megin og mynda sama andrúmsloft og á Blikavellinum. Látum Peyjana finna fyrir stuðningi á vellinum.
PMJ
Upphitun á 900 Grillhúsi fyrir leik ÍBV og Grindavíkur á sunndag20. ágúst 2010
Framundar eru mikilvægustu leikir ÍBV í fjöldamörg ár. Styðjum liðið okkar sem aldrei fyrr, því það skiptir máli og skilar sér til leikmanna.
tt
Til baka...