- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- Skipurit
- ÍBV gegn einelti
Nýjast á hliðarsíðum

Gleðilegt nýtt ár
http://www.dalurinn.isVíti í Vestmannaeyjum
http://www.shellmot.is
Pæjumót TM 2012
http://paejumot.ibv.is
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.
http://www.eyjamenn.is
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Gott stig gegn Blikum?17. ágúst 2010
Jæja, þetta var náttúrulega bara snilldarferð í Kópavog í gærkvöldi. Úrslitin þolanleg, stemmningin frábær og vonandi að þetta skili sér áfram í næstu leikjum. Nú skorum við á Eyjamenn á fastalandinu að fjölmenna út í Eyjar á sunnudaginn og vera með okkur á Hásteinsvellinum gegn Grindavík. Það er jafnlangt báðar leiðir! Skilja bara bílinn eftir í Landeyjum þá ætti ekki að vera vandamál að fá pláss með skipinu.
Geir Reynis
Gott stig gegn Blikum?17. ágúst 2010
Frábært stig í kópavogi á erfiðum útivelli, en eftir að hafa melt þennann leik betur að þá hef ég skipt um þá skoðun mína um að ÍBV hafi verið heppið að sleppa með stig. ÍBV sótti þetta stig glæsilega og aðeins óheppni varð til þess að við tókum þau ekki öll. Vissulega sóttu blikar mjög mikið, en ÍBV varðist líka vel og lék greinilega þann leik sem þeir lögðu upp með. Láta blikana sækja og reyna svo að koma á þá marki með föstu leikatriði eða skyndisókn. Kannski heilt yfir að þá voru þetta sanngjörn úrslit, en einu varnarmisök sem hægt er að tala um í Varnarleik ÍBV kostuðu mark. Þannig að það er frekar hægt að tala um að blikarnir hafi verið heppnir að krækja í stigið. Eða hvað? Hvað finnst mönnum um þetta?
Beggi
Gott stig gegn Blikum?17. ágúst 2010
Úrslitin voru mjög góð fyrir ÍBV. Stemningin á áhorfendapöllunum var mjög góð til að byrja með, en datt svo niður þegar nokkrar fyllibyttur komu á svæðið til að "styðja" ÍBV.
Skammarlegt að horfa upp á þetta.
Áhorfandi
Gott stig gegn Blikum?17. ágúst 2010
Ég er sammála þér með stemninguna, hún var frábær í upphafi þegar Skapti og félagar voru að blása í lúðrana og fólk var að taka vel undir. Svo komu þessir peyjar frekar vel í glasi og eyðilögðu frekar fyrir ef eitthvað var. Þeir voru stundum að reyna að spila eitthvað annað ofan í það sem lúðrarnir voru að spila. Þeir voru sér eiginlega meira til skammar og eyðilögðu fyrir ef eitthvað var.
Stuðningsmaður ÍBV
Gott stig gegn Blikum?17. ágúst 2010
Já, sumir eru ekki alveg setja hlutina í rétta röð. En mér fannst stemmningin fín, var reyndar ekki aleg ofaní þessum peyjum en þeir verða bara að taka þetta til sín og bæta sína framkomu.
Geir Reynis
Gott stig gegn Blikum?18. ágúst 2010
verð að vera sammála mönnum hér að ofan bæði varðandi leikinn og "stuðningsmennina " sem að voru ekki alveg í takt við það sem að var búið að vera í gangi þegar þeir mættu.
þetta jafntefli var bara sanngjarnt, þetta var greinilega sett upp þannig að við myndum verjast þeim vel á okkar vallarhelmingi og sækja síðan hratt ... það finnst mér hafa tekist vel, sérstaklega þegar maður hefur í huga að blikarnir eru með eitt flottasta sóknarliðið á íslandi sem og einn besta leikmann deildarinnar ( Alfreð Finnboga)
fannst virkilega gaman að sjá baráttuna í liðinu og tóti + tryggvi deila maður leiksins að mínu mati, nenni ekki að útskýra það neitt frekar.
en aðeins varðandi "stuðningsmennina" ... ekki að ég vilji lasta einn né neinn en þá var þetta hálf sorglegt og óskipulagt hjá þeim. þeir komu inn í rífandi stemmningu sem að Stalla hú var búinn að búa til og í staðinn fyrir að reyna að vera einfaldlega samtaka þeim þá var reynt að vera með meiri læti, ... og vuvuzela vill ég ekki sjá á vellinum... en það er bara ég ;)
en þeim ber samt að hrósa fyrir að mæta og láta í sér heyra ... hefði bara mátt vera meira í takt við það sem að var í gangi.
en vonandi að svona flott stemmning haldi áfram út mótið og við endum í topp þremur
áfram ÍBV
G.G
Gott stig gegn Blikum?18. ágúst 2010
Þessir peyjar eru allir að vilja gerðir og hafa stundum verið einu stuðningsmenn ÍBV á pöllunum sem hafa látið í sér heyra. Hins vegar þurfa menn ekki alltaf að vera aðalnúmerið og stundum er betra að fylgja með en að stýra. Þeir vitað það eftir þetta en er sammála því að þeir verði að minnka drykkjuna. Allt í lagi að fá sér í glas en þeir voru ölvaðir og það á ekki heima á fótboltavellinum.
Haukur
Gott stig gegn Blikum?18. ágúst 2010
Þessir peyjar eru allir að vilja gerðir og hafa stundum verið einu stuðningsmenn ÍBV á pöllunum sem hafa látið í sér heyra. Hins vegar þurfa menn ekki alltaf að vera aðalnúmerið og stundum er betra að fylgja með en að stýra. Þeir vitað það eftir þetta en er sammála því að þeir verði að minnka drykkjuna. Allt í lagi að fá sér í glas en þeir voru ölvaðir og það á ekki heima á fótboltavellinum.
Haukur
Gott stig gegn Blikum?19. ágúst 2010
Takk fyrir komuna, metaðsókn á Kópavogsvelli, frábært að sjá ykkur öll, langflottasti stuðningur sem sést hefur við gestalið í Kópavogi. Kannski besta gestalið sem sést hefur líka, allavega vörnin.
En við munum vinna.
Kveðja-
Bliki.
Bliki
Gott stig gegn Blikum?19. ágúst 2010
Takk fyrir þessi orð Bliki. Það var alveg frábær stemning á vellinum og eyjamenn að kveða niður þessi leiðinlegu mýtu að það sé ekki stemning þegar ÍBV spilar. Ég sæi ekki svona marga Fh inga mæta á leik í eyjum eða KR inga. Ég vona innilega að það verði blikar sem fagni í lok sumars ef mínum mönnum verður á, það er einfaldlega kominn tími á breytingar í íslenskum fótbolta.
Trausti
Gott stig gegn Blikum?19. ágúst 2010
Jájá, þvílík stemning á vellinum áður en við komum.
það voru nokkrir þarna að blása í lúðra og allir hinir aumingjarnir alltof snobbaðir til þess að láta í sér heyra, ef einhverjir voru til skammar þá voru það eyjamennirnir sem heyrðist ekkert í.
Varðandi drykkjuna þá er varla hægt að ætlast til þess að fólk sem hefur lagt í vana sinn að horfa á enskann fótbolta nenni að horfa á hægustu fótboltadeild veraldar án þess að fá sér.
En allavega þá vill ég biðjast afsökunar á því að vera ekki að drepast úr snobbi.
-Stuðningsmaður.
Ásmundur (fyllibytta)
Gott stig gegn Blikum?19. ágúst 2010
Síðustu 2-3 árin sem ég hef mætt á leiki með ÍBV hefur stemmningin hjá áhorfendunum ekki verið merkileg, enda bara áhorfendur. Flestir sem mæta á leiki sita bara á rassgatinu og halda "kúlinu" allan leikinn og þora ekki að láta í sér heyra. Þannig að við ákveðum að rífa upp þessa hörmungar stemmninguna og mæta sem STUÐNINGSMENN á leiki með ÍBV, Við vorum vel undirbúnir fyrir leik Íbv og breiðabliks og komum c.a 20 mínútum of seint á leikinn og allir voru jú með bjór en stemmningin í þessum hópi var mögnuð, þegar við komum á leikinn var allt troðið og ekki pláss fyrir okkur, vorum tilbúnir með söngva og ýmis flott "skemmtiatriði" en það heyrist örugglega alltaf mest í okkur þegar við tökum okkur saman og styðjum okkar lið og ætlum að halda því áfram...
Fyrir hönd einu stuðningsmannasveitar IBV biðst ég afsökunar á fíflaganginum og drykkjunni.
sjáumst á næsta leik.. við höldum áfram!!
Emmi (ein af "fyllibyttunum
Gott stig gegn Blikum?20. ágúst 2010
Var á leiknum í kópavogi með 30 peyjum úr 4 flokki og skemmti mér konunglega. Verð að segja að spennan var eyndar orðin óbærileg í lokinn. Átti erfitt með að horfa á þetta. Leikkerfi Heimis gekk upp 90%. Það er skora fyrsta markið og síðan bakka og loka á hina fljótu sóknarmenn Blikanna. Svo til einu varnarmistök okkar manna gáfu þeim síðan mark. En frábær árangur hjá strákunum og frábær stemming. Sjáumst á ÍBV - Grindvík á sunnudag.
PMJ
Gott stig gegn Blikum?21. ágúst 2010
Lágmark að skrifa undir nafni þegar maður er að gangrýna aðra hérna inn á, Það hefur varla heyrst í neinum á heimaleikjum herna, svo loksins þegar eithverjri koma og styðja IBV þá fara allir að hágrenja hérna inn á, Get nú ekki sagt að það hafi eithver verið til skammar þarna, ef ég las rétt um daginn í eithverri grein frá KSÍ að þegar nokkur þúsund mans koma saman, þá eru alltaf einhverjir sem haga sér ekki eins og englar, og lítið hægt að gera í því, Get ekki annað sagt en þetta hafi verið einn besti stuðningur sem IBV hefur fengið á útivelli í mörg ár, og það er það sem ætti að skipta máli. En ef þetta fór eithvað fyrir hjartað á þessum öldruðu sem voru þarna, þá bara biðjumst við afsökunar á því, það var aldrei meiningin að vera með eithver dólgslæti eða neitt þanning, Komum þarna til að styðja við bakið á okkar mönnum eins og við höfum svo marg oft gert í gegnum tíðina, annað en flestir á þessari eyju hérna..
Bennó
Gott stig gegn Blikum?21. ágúst 2010
Lágmark að skrifa undir nafni þegar maður er að gangrýna aðra hérna inn á, Það hefur varla heyrst í neinum á heimaleikjum herna, svo loksins þegar eithverjri koma og styðja IBV þá fara allir að hágrenja hérna inn á, Get nú ekki sagt að það hafi eithver verið til skammar þarna, ef ég las rétt um daginn í eithverri grein frá KSÍ að þegar nokkur þúsund mans koma saman, þá eru alltaf einhverjir sem haga sér ekki eins og englar, og lítið hægt að gera í því, Get ekki annað sagt en þetta hafi verið einn besti stuðningur sem IBV hefur fengið á útivelli í mörg ár, og það er það sem ætti að skipta máli. En ef þetta fór eithvað fyrir hjartað á þessum öldruðu sem voru þarna, þá bara biðjumst við afsökunar á því, það var aldrei meiningin að vera með eithver dólgslæti eða neitt þanning, Komum þarna til að styðja við bakið á okkar mönnum eins og við höfum svo marg oft gert í gegnum tíðina, annað en flestir á þessari eyju hérna..
Bennó
Gott stig gegn Blikum?23. ágúst 2010
Til baka...
Það er erfitt að lasta það þegar menn styðja ÍBV eins og þessir strákar hafa verið að myndast við að gera. Stalla Hú eru líka þrælflottir og setja skemmtilegan svip á pallana þegar ÍBV mætir til leiks. Menn eru að búa til söngva og skemmtilegir hlutir í gangi þó það hafi ekki gengið vel í gær gegn Grindvíkingum inni á vellinum. Ég vona bara hvað sem líður umræðu hér á spjallinu að allir fullir sem minna fullir eða bara allsendis ófullir haldi áfram að mæta á völlinn og styðja ÍBV saman. Sjáumst í Árbænum kl. 18 á sunnudag. Áfram ÍBV !
Jón Óskar













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011