ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Upphitun á Spot fyrir leikinn.14. ágúst 2010
Eyjamenn, við hitum upp á SPOT fyrir leikinn við Breiðablik, frá kl. 17:30. Staðarhaldarar munu bjóða okkur tilboð af mat og drykk að sjálfsögðu og Eyjastemmingin verður til staðar. ÍBV og Vestmannaeyjar upp um alla veggi ! Áfram ÍBV
Trausti Hjalta
Upphitun á Spot fyrir leikinn.14. ágúst 2010
20% afsláttur af matseðli og stór öl á 600kall fyrir þá sem vilja. Rifjum upp gömlu góðu stemminguna og fjölmennum og eflum Eyja-andann ! Áfram ÍBV !
Jón Óskar
Upphitun á Spot fyrir leikinn.14. ágúst 2010
Vissulega mun ég mæta á Spot á réttum tíma og hvet alla Eyjamenn til að mæta þar. Við erum að keppa við lið sem kemur úr 5-6 sinnum stærra bæjarfélagi og því er við ramman reip að draga. ÍBV lætur það ekki hafa áhrif á sig, enda fyrsta liðið til að taka Bikarmeistaratitilinn úr Faxaflóanum og jafnframt fyrsta liðið til að taka Íslandsmeistaratitilinn út á landsbyggiða. Það er meira en að segja, að vinna titil í fótbolta, enda vinsælasta og fjölmennasta íþróttargrein í heimi. Ég hvet alla til að mæta og styðja okkar menn. Þeir eru nú þegar búnir að sína flottan fótbolta og vonandi halda þeir því áfram. Við Heimi og liðið vil ég bara segja ÁFRAM ÍBV.
Bergur Kristinsson
Upphitun á Spot fyrir leikinn.16. ágúst 2010
STALLA HÚ ætlar að mæta á SPOT og verður svo með okkur í gömlu stúkunni á leiknum. Áfram ÍBV og allir á völlinn....og SPOT :)
Jón Óskar
Til baka...