ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Aukaferð með Herjólfi -hópferð á Breiðabliksleikinn staðfest!12. ágúst 2010
Upplagt er að skella sér með Herjólfi frá Eyjum kl. 17:00 á mánudeginum og fara svo til baka með aukaferðinni kl. 23:30. Hægt verður að fara með rútu frá Landeyjarhöfn kl. 17:30 sem fer beint á Kópavogsvöll og til baka strax eftir leik frá Kópavogsvelli. Það er rútufyrirtækið Sterna sem sér um þessar ferðir. Eyjamenn á Reykjavíkursvæðinu munu svo hittast á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi fyrir leik og munu hóparnir síðan sameinast á Kópavogsvelli. Hópferð Hægt er að kaupa miða á leikinn og miða í rútuna fram og til baka á Kópavogsvöll á 5.700 kr (fólk bókar sjálft í Herjólf). Þeir sem ætla með rútunni verða að skrá sig hjá: Óskari í síma 863-0516 eða Trausta í síma 698-2632 eða trausti@ibv.is eða skrá sig hér á síðunni eigi síðar en á sunnudag.
Trausti Hjalta
Aukaferð með Herjólfi -hópferð á Breiðabliksleikinn staðfest!13. ágúst 2010
Haldið þið að rútan nái í Kópavog fyrir leik ef farið verður með 17.00 ferðinii?
Geir Reynis
Aukaferð með Herjólfi -hópferð á Breiðabliksleikinn staðfest!13. ágúst 2010
Rútan er aldrei meira en 2 tíma í bæinn ef hún þarf ekkert að stoppa....Eina spurningarmerkið er hvort Herjólfur nái að fara á réttum tíma....
Beggi
Aukaferð með Herjólfi -hópferð á Breiðabliksleikinn staðfest!13. ágúst 2010
Ef Herjólfur er á réttum tíma þá á það að nást. Miðarnir á leikinn verða klárir og rútan fer beint á völlinn þannig að þetta er bara algjör snilld.
Jói Jó
Aukaferð með Herjólfi -hópferð á Breiðabliksleikinn staðfest!13. ágúst 2010
Ef rútan fer 17:30 og aksturinn tekur 2 tíma, þá kemur hópurinn ekki fyrr en 19:30 - semsagt 15 mínútum eftir að leikur hefst. Er það ekki frekar óheppilegt...?
Smári Jökull
Aukaferð með Herjólfi -hópferð á Breiðabliksleikinn staðfest!13. ágúst 2010
Aksturinn tekur 1:30 max 1:45 þá er hún að koma ákkurat á tíma sem er mjög heppilegt. Annars er lítið við því að gera þó að mannskapurinn komi nokkrum mínotum of seint. Bara stemmning að mæta öll saman á leikinn. Þetta verður rosalegt.
Jói Jó
Aukaferð með Herjólfi -hópferð á Breiðabliksleikinn staðfest!14. ágúst 2010
Held að við ættum alveg að búa okkur undir að missa af fyrstu 15-20 mín. Þetta tekur allt tíma. En við mætum þá bara með stæl. Spurnng um að mæta í appelsínugulum sjógalla buxum, eftir yfirlýsingar Blika eftir Þjóðhátíð!
Geir Reynis
Aukaferð með Herjólfi -hópferð á Breiðabliksleikinn staðfest!15. ágúst 2010
Hefur verið skoðað að fá Herjólf til að fara t.d. kl. 16.30 eða kl. 16.45? Spurning hvernig þeir taka í það sem eiga bókað en eru ekki að fara á leikinn. Er ekki mögulegt að kanna þetta, því þá eiga allir að komast tímanlega á leikstað.
Ingi Sig
Aukaferð með Herjólfi -hópferð á Breiðabliksleikinn staðfest!16. ágúst 2010
Ég held að auðveldast hefði verið að leikurinn yrði færður til kl.19.30. KSÍ hefði varla staðið fyrir því né Stöð 2 sport. Ekki verður þessu breytt úr þessu, vonandi missa menn ekki af mörgum mínútum.
Benedikt
Til baka...