ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
ÍBV - Keflavík08. júlí 2010
Það ætti að vera stór platkat af Eiði á hverju heimili og mynd af Heimir uppá hillu(hliðini á Hjalta kristjáns myndini). Stórglæsilegt hjá strákunum. Taka bara einn leik í einu og hafa gaman af þessu.
Sigurður Einar
ÍBV - Keflavík09. júlí 2010
Ekki veit ég hvers vegna Keflvíkingar eru að kvarta undan dómgæslunni, en þeir spiluðu þennan leik mjög fast, voru hlaupandi niður leikmenn ÍBV þúsund sinnum í leiknum. T.d brutu hvað eftir annað á Dennis.. Dómarinn var ekki að veita honum nægilega vernd sem dæmi.. og hann hefur fengið frekar óblíðar móttökur í flestum leikjum.. en svona er þetta, menn leika eins og dómarinn leyfir. Keflavík með frábært lið, ekki spurning... Og það verður hart barist seinni hluta móts.. Sterkustu liðin sem ég hef séð í sumar spila við ÍBV eru Breiðablik og Keflavík, og svo eru önnur lið að koma til, eins og FH og KR og fleiri.. Það eru margir kallaðir en einn útvalinn.. En Blikarnir eru í toppsætinu og hafa þess vegna forskot á seinni umferðina...
jj
ÍBV - Keflavík09. júlí 2010
Keflavík spilaði þennan leik afar fast og áttu spjöldin skilið, voru heppnir að hanga 11 inn á svona lengi, burtséð frá þessu síðasta atviki. Það var alveg greinilegt að dagsskipunin hjá Keflavík var að bjóta niður leik ÍBV liðsins með eins föstum leik eins og dómarinn leyfir, nema að dómarinn leyfði það bara ekki og gaf spjöld, en Keflvíkingarnir voru bara svo heppnir að spjöldin dreifðust á menn...og ef þetta hefði lent þannig að einn eða tveir menn hefðu fengið að fjúka út af, þá hefði þessi leikaðferð snúist í höndunum á þeim. ÞETTA TÓKST NÆSTUM ÞVÍ hjá þeim.. En dómarinn var einfaldlega mjög góður í þessum leik, kanski fyir utan þetta síðasta spjald, en þó má segja honum til varnar að þegar þú hrindir manni þá er það spjald, ekki flókið. Tryggvi er enginn sökudólgur í þessu atviki, hann var bara að reyna að sækja til sigurs og ætlaði að taka innkast, sem var svo Keflvíkinganna, og Keflvíkingurinn ræðst að Tryggva, hrindir honum og tekur boltann, auðvitað af sömu ákefð til að sækja sigur.. enginn sérstakur FARSI þarna á ferð eins og WILLUM talar um, nema að ef leikmenn Keflavíkur settu upp einhvern farsa eftir þetta atvik..( sem þeri gera nú stundum) En þegar á öllu er á botninn hvolft, þá var þetta sanngjarn sigur, þar sem ÍBV var betra í fyrr hálfleik, og í þeim seinni tókst Keflavík næstum því að brjóta niður leik ÍBV með föstum leik, sem næstum því tókst, ren RÉTTLÆTIÐ sigraði að lokum, húrra fyrir því...
L.UV
ÍBV - Keflavík09. júlí 2010
Gríðarlega gaman að sjá liðið vinna svona erfiðan leik með þessum hætti. Liðið er að mínu mati búið að sýna að það er bullandi karakter í því. Þessir strákar eru grjótharðir og gaman að sjá hvernig allir í liðinu berjast og slást fyrir ÍBV óháð þjóðerni, þessir menn vilja einfaldlega vinna fyrir liðið. Vonandi nær liðið að halda dampi og koma sér í kjörstöðu fyrir leikinn gegn Breiðablik í lok heimaleikjatarnarinnar. Ég hef það á tilfinningunni að það sé einfaldlega meira stál í þessu liði en Breiðabliksliðinu þótt það sé mjög spennandi lið. áfram ÍBV
Trausti
ÍBV - Keflavík09. júlí 2010
Skrítið þegar menn eru að tjá sig um spjöld eða ekki spjöld eins og Valtýr Björn á X inu, þegar hann sá ekki leikninn... Sagði að það hafi verið hallað á Keflavík.. sem er bara ekki rétt.. Verið að gefa í skyn að dómarinn hafi verið þeim andsnúinn með þessu og það er ekki rétt.. Menn verða að vita hvað þeir eru að tala um og ekki vera að sá slíkum fræum.. menn verð að reyna að bera virðingu fyrir því sem starfsmenn leiksins eru að gera og þeir stóðu sig vel í þessum leik.. OG gagnrýna þegar það á rétt... en ekki út í loftið ... yes yes.. my man..
L.UV
Til baka...