- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- Skipurit
- ÍBV gegn einelti
Nýjast á hliðarsíðum

Gleðilegt nýtt ár
http://www.dalurinn.isVíti í Vestmannaeyjum
http://www.shellmot.is
Pæjumót TM 2012
http://paejumot.ibv.is
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.
http://www.eyjamenn.is
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Breiðablik....er...næst og26. maí 2010
Besta lið landsins í dag ? eða hvað ? Skemmtilegur leikur framundan gegn sprækum Blikum... erfitt en verðugt verkefni...áfram ÍBV
bj
Breiðablik....er...næst og26. maí 2010
Já, eitt besta lið landsins, kanski besta, mætir á Hásteinsvöll næstkomandi Sunnudag og etur kappi við ÍBV í sínum fyrsta heimaleik..Þetta Breiðabliks lið getur landað dollunni í sumar, eru með nógu gott lið til þess. Verðum að eiga topp leik á móti þeim, ekki spurning, til að geta náð einhverju út úr þessum leik.. Þetta er gryfjan okkar...áfram ÍBV.
NN
Breiðablik....er...næst og26. maí 2010
Já já ég er alveg til í sigu gegn Blikum í fyrsta heimaleik. Við erum jafnir þeim að stigum eftir að hafa ekki spilað einn heimaleik. Nú er að hirða stigin á Hásteinsvelli. Áfram ÍBV !
Jón Óskar
Breiðablik....er...næst og26. maí 2010
Ein spurning.... Veit einhver hvernig völlurinn er??? Þyrlast eitthvað af ösku upp af honum?
Beggi
Breiðablik....er...næst og26. maí 2010
Allir stuðningsmenn ÍBV eru velkomnir í stuðningsmannahitting í Týsheimilinu á föstudaginn kl. 20:00.
Heimir fer yfir stöðu mála, stuðningsmannaklúbburinn mætir á svæðið, sala árskorta og ÍBV stemmning sem engin má missa af.
Heitt verður á könnunni.
Trausti
Breiðablik....er...næst og26. maí 2010
Lúðrar, fánar, búningar. Mæta, búa til alvöru stemmningu mar... hvar er lúðrasveitin ? ha Og allir yngri flokkarnir mæta í búningum...ha.. man...! ÍÍÍBV
Sveinn Jónsson
Breiðablik....er...næst og27. maí 2010
Væri náttúrulega frábært ef það væri hægt að gera alvöru "karnival" stemmningu á fyrsta heimaleik, fá yngri flokka í búningum, Lúðró á svæðið og slíkt! Blikarnir eru mjög sterkir og búið að tala um Alfreð Finnboga sem besta mann mótsins hingað til. En ég hef enga trú á öðru en strákarnir mæti í fyrsta heimaleikinn af tvöföldum krafti eftir gott gengi í byrjun. Sigur í þessum leik myndi kveikja verulega í fólki...
Smári Jökull
Breiðablik....er...næst og30. maí 2010
Frábær dagur til að fá leik. Veðrið verður ekki flottara og vonandi að við fáum skemmtilegan leik. Ég tel Blikana vera meðal 3 bestu liða landsins í dag. Kraftmiklir ungir strákar sem hafa gaman af því sem þeir eru að gera. Treysti að okkar strákar komi vel stemmdir til leiks og sýni okkur sprihliðarnar í fyrsta heimaleik. Smári....varðandi Karnival stemmnigu verð ég því miður að hryggja þig með því að vera algerlega ósammála. Hef verið lengi í kringum liðið og oft verið góð stemmning en ef menn hafa farið í einhverja sérstakar stellingar fyrir heimaleiki hefur það oftar en ekki farið illa. Hef ekki hugmynd um af hverju, en þannig hefur það bara verið. Virðist best að mæta bara eins og venjulega og styðja sitt lið.
Geir Reynis
Breiðablik....er...næst og30. maí 2010
Jafntefli..1-1, verða að teljast sanngjörn úrslit. ÍBV réði gangi leiksins í fyrri hálfleik. Blikarnir voru ekki að ógna mkið en maður sér að þeir eru alltaf líklegir þrátt fyrir það og það má ekki líta af þeim, því þeir eru sterkir, fljótir og sprækir. Þetta jafnðist í seinni hálfleik, og Blikarnir voru meira inni í leiknum. En það verður að benda á eitt atriiði, og það er hversu litla vernd Úkrainumaðurinn fær frá dómaranum, þar sem Dennis heldur bolta vel, og þá nota Blikarnir það ráð að hlaupa hann niður hvað eftir annað án þess að fá spjald eða aðvörun. Síðan fær Dennis spjald fyrir að toga í einn Blikann í lokin, frekar kaldhæðnislegt. Svo þarf að spjalda markmann Blikanna sem er að heimta spjöld á andstæðingana, frekar óíþróttamannslegt, Annars eru Blikarnir með skemmtilegt lið, sem ætti að geta gert góða hluti í sumar, og ÍBV liðið er mjög vel spilandi lið, spilar flottan fótbolta. Áfram ÍBV:
Halldor
Breiðablik....er...næst og30. maí 2010
Án efa einn best spilaði leikur ÍBV í langan tíma á Hásteinsvelli. Mun meiri ró yfir spili liðsins en verið hefur undanfarin ár. Fannst samt full mikill pirringur í leikmönnum miðað við að við vorum að stjórna leiknum á löngum köflum. Leiðinlegt að skotið frá Tryggva skyldi fara sláin yfir en ekki sláin inn. Hefði verið fullkomin endurkoma á hásteinsvöll. Lofar samt verulega góðu og ég hlakka mikið til að sjá leikinn á móti KR á miðvikudag.
Geir Reynis
Breiðablik....er...næst og30. maí 2010
Til baka...
Mín skoðun er að þarna voru tvö af þremur bestu liðum Íslandsmótsins "so far". Jafntefli er því ekkert til að svekkja sig á, ekkert til að fagna heldur. Það hefði ekki verið sanngjarnt að annað liðið hefði unnið. Vil samt segja þetta. ÍBV liðið eins og það er núna er virkilega skemmtilegt og á alla möguleika á að blanda sér í toppbaráttuna. Evrópukeppni er eftir allt saman ekki svo fjarlægur draumur. Mér finnst líka mjög jákvætt að þótt Tryggvi sé frábær leikmaður og mikilvægur liðinu, þá eru aðrir leikmenn að stíga upp. Þetta veltur ekki á einum leikmanni, heldur eru fleiri sem rífa þetta áfram og draga hina upp á sitt plan. Ég segi, stefnum á dolluna og sjáum svo til hvað verður. Klárlega besta ÍBV-liðið síðan 1998, betra en 1999, 2001 og 2004 sem enduðu öll í 2. sæti. Áfram ÍBV!
Haukur













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011