ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Frábær úrslit20. maí 2010
Til hamingju Heimir og lið ÍBV í fótbolta. Þetta voru í einu orði sagt frábær úrslit og ég dáist að dugnaðinum í ykkur fyrir hönd stuðningsmanna ykkar. Ég sat fyrir framan tölvuna og horfði á nýustu uppfærslur á Mogganum. Náði ekki lýsingunni, en ég er ekki mikið tölvugúrú. Bara til hamingju aftur og vonandi haldið þið áfram á sömu braut.
Bergur Kristinsson
Frábær úrslit20. maí 2010
Vil taka undir með Bergi hér að ofan. Þessi úrslit færðu mikla gleði í þann hóp sem ég var með í gærkvöldi. Takk fyrir það peyjar. Frábær úrslit og nú þarf bara að halda einbeitningunni gegn hinu Hafnarfjarðarliðinu á mánudaginn. Stig þar myndi gera þessa útileikja seríu mjög góða.
Haukur
Frábær úrslit20. maí 2010
Frábær úrslit. Varið ykkur á hinu Hafnarfjarðarliðinu, þeir eru seigir Haukarnir... og koma dýrvitlausir í næsta leik. Verðum að halda haus þar, vonandi verða menn á jörðinni og taka næsta leik mjög alvarlega...ÍÍÍÍBV...
JJ
Frábær úrslit21. maí 2010
Það er ekki hægt annað en að taka undir þetta. Held að allir Eyjamenn, nær og fjær, hafi gengið brosandi til náða í kvöld.
BjarniBen
Frábær úrslit21. maí 2010
Tek undir hamingjuóskir til þjálfarans og strákanna. Einnig stuðningsmanna, sem voru mjög margir á leiknum í gær og var það mjög kærkomið að sjá. Frábær fyrri hálfleikur og svo seigla í þeim síðari, skilaði þremur stigum. Haukar eru sýnd veiði en ekki gefin. Baráttulið sem ÍBV hefur ekki gengið of vel með fram til þessa. Munu selja sig dýrt eftir 3-0 tap gegn Selfossi. Áfram ÍBV !
Jón Óskar
Frábær úrslit21. maí 2010
Frábær leikur og við hefðum átt að skora fleiri mörk í fyrri hálfleik. Eyþór reið Hr.Nielsen illa í fyrri hálfleik og var virkilega gaman að horfa á það.
Birkir
Frábær úrslit21. maí 2010
Frábær úrslit í gær og til hamingju með þetta Heimir og leikmenn.
Sigurður Einar Einarsson
Til baka...