ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Byrjum á 4 útileikjum15. maí 2010
Hvernig líst mönum á þetta. Við erum auðvita búnir með Fram og svo er það Valur,FH og Haukar á næstuni. Ég tel að þetta geti verið gott og slæmt. Við erum að fá menn inní liðið og það verður að viðurkennast að það tekur nokkra leiki að koma liðinu í gang. Er þá kannski ekki bara eins gott að eyða útileikjum í það? Svo er það frá hinu sjónarhorninu, við þurfum að bæta árangurinn á útivelli því að við fáum flest okkar stig á heimavelli og því hefði kannski verið gott að fá heimaleiki og fara að safna stigum á útivelli(ég er samt ekki að segja að við ætlum ekkert að fá út úr þessum leikjum á útvelli í upphafi móts). Besta sjónarhornið er eftilvill að þetta er bara svona og við tökum bara á þessu verkefni reynum að uppskera eins mörg stig og við getum.
Sigurður Einar
Byrjum á 4 útileikjum17. maí 2010
Mörg sterk lið í þessari deild, og sennilega geta allir tekið stig af öllum, spurning um dagsformið. Sem sést kanski á því að báðir nýliðarnir hafa nú tekið stig gegn sigurstranglegast liðinu að flestra mati. ÍBV verðu talsvert spurningarmerki til að byrja með... verður spennandi að sjá hvernig þetta þróast.. leikurinn við Fram var slakur... vonandi sá slakasti sem við sýnum í sumar...
jj
Byrjum á 4 útileikjum17. maí 2010
Miðað við það sem ég hef lesið var þessi Framleikur frekar slakur, andleysi í liðinu. Það þarf að koma þessu brjálæði inn í hópinn, allir að öskra hvorn annan áfram, berjast til síðasta manns og svo framvegis - að ég tala nú ekki um í útleikjunum! Við getum hæglega tekið stig í þessum útileikjum og munum gera það. Það hjálpar okkur vonandi að liðið fær viku þar sem það spilar þrjá leiki og æfir allt saman þess á milli - þá kannski slípast þetta betur saman! Vonandi að fólk fjölmenni á Vodafonevöllinn í kvöld, ég verð þar í anda! ÁFRAM ÍBV !!!
Smári Jökull
Byrjum á 4 útileikjum17. maí 2010
Vonandi skila þessir nýju leikmenn því sem til er ætlast. Finnst ég vera farinn að sjá sömu taktík hjá Heimi og þegar hann gerði stelpurnar að bikarmeisturum. Það var gaman en skammgóður vermir því titillinn var dýrkeyptur. Undirstöðu liðsins var fórnað, mikið af leikmönnum keyptir sem skiluðu titli en fóru svo. Hef áhyggjur af þessari þróun í karlaliðinu. Vonandi hef ég rangt fyrir mér og við stöndum uppi með Evrópusæti í haust...
Haukur
Byrjum á 4 útileikjum18. maí 2010
Það er allaveganna komið jafn mikið af stigum úr tveimur útileikjum hjá okkur en tveim fyrstu ('gefins') leikjunum hjá KR :D
BjarniBen
Byrjum á 4 útileikjum18. maí 2010
Held samt að bæði Haukar og Selfoss hafi sýnt að það verður ekkert gefins hjá þeim í sumar, þó svo að KR-ingar hafi jafnvel gert ráð fyrir því (að minnsta kosti stuðningsmennirnir). En það væri frábært ef við myndum ná í 4 stig í viðbót úr þessari útileikjahrinu, held að það sé alveg raunhæft markmið þó svo að farið sé í alla leiki til að vinna.
Smári Jökull
Byrjum á 4 útileikjum18. maí 2010
Miðað við fréttaflutning af gosstöðvunum megum við þakka fyrir að fá einhverja heimaleiki í sumar. Valsleikurinn lofar góðu, menn búnir að ná úr sér sviðskrekknum og börðust eins og ljón þótt það rauða hafi vantað mest allan leikinn. Þarna sá maður aftur gömlu góðu baráttuna sem er vel. Vonandi halda þeir því áfram nú á fimtud. því ég held að það sé möguleiki á móti FH núna sem aldrei fyrr. Annars er ég töluvert svekktur með Garner í vörninni í þessum tveimur leikjum, finnst eins og hann sé ekki alveg kominn í gang. Hvað er það ? Hann verður að fara girða sig aðeins betur í brók. Annars eins og alltaf ÁFRAM ÍBV
Halldór Gunnarss
Til baka...