ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
5 - 022. apríl 2010
Selfoss - ÍBV 5 - 0 Hvað er í gangi, erum við ekki betri en þetta?
nn
5 - 022. apríl 2010
Hrollvekjandi...
nn2
5 - 022. apríl 2010
Hvaða mannskapur var á vellinum fyrir okkar lið? Þetta verða að vera örugg 6 stig í sumar.
BjarniBen
5 - 023. apríl 2010
Fann umfjöllun um leikinn: http://selfoss.org/?p=1737 Samkvæmt þessu vantaði Matt Garner og Tonny Mawejje, það munar nú mikið um þá. Vita menn hvernig Englendingurinn stóð sig?
Siggi
5 - 023. apríl 2010
Fann umfjöllun um leikinn: http://selfoss.org/?p=1737 Samkvæmt þessu vantaði Matt Garner og Tonny Mawejje, það munar nú mikið um þá. Vita menn hvernig Englendingurinn stóð sig?
Siggi
5 - 023. apríl 2010
Við skulum nú ekki tapa okkur alveg. Undirbúningsleikir eru undirbúningsleikir og það er alltaf hægt að taka eitthvað úr þeim - sama hvernig þeir fara. Vissulega hefur maður áhyggjur að liðið tapi 5-0, og þó svo að það vanti tvo leikmenn sem væru eflaust byrjunarliðsmenn, þá þýðir lítið að skýla sér á bakvið það - við verðum að eiga aðra menn sem eru klárir. Annars væri gaman að vita hvort stefnan sé sett á að bæta við mannskap, sérstaklega eftir að þær fréttir bárust að afar ólíklegt væri að Ajay og Chris kæmu aftur.
Smári Jökull
5 - 023. apríl 2010
Já það er rétt Smári, sé að þeim hefur vantað Sævar Þór, Davíð Birgis, Stefán, Gunna Borgþór, Jón Guðbrands og Jón Sveins. Veit nú hreinlega ekki hvort að þeir geti eitthvað þessir menn og hvort þeir séu jafn mikilvægir fyrir þá eins og Garner og Tonny hjá okkur. Ætli Gummi Ben hafi ekki verið allt í öllu hjá þeim?
Siggi
5 - 023. apríl 2010
Nei Gummi Ben er í Frakklandi svo hann var ekki allt í öllu í þessum leik. Sævar er auðvitað lykilleikmaður hjá okkur eftir að hann kom aftur er hann held ég með 53 og 53 mörk, Jón Sveins er búinn að vera fyrirliði liðsins í mörg ár og væntanlega mjög mikilvægur. Stefán Ragnar er lykilmaður í vörninni og er á reynslu hjá Monaco þessa dagana svo eitthvað getur hann og Jón Guðbrands er alltaf sterkur, en annars var þetta mjög góður sigur hjá mínum mönnum og það verður gaman að fá suðurlandsslagi á tímabilinu. En vonandi að ykkur gangi vel í deildinni nema í þessum 2 leikjum á móti Selfossi :)
Selfoss
5 - 004. maí 2010
Ég held nú að menn séu ekki mikið að lesa í þennan leik þannig séð. Eyjamenn (Heimir held ég) báðu um hann seint um kvöldið og var hann spilaður snemma daginn eftir um (11:00 held ég). En Selfoss var spila fanta vel og eyjamenn greinilega ekki tilbúnir, hápunktur leiksins líklega þegar Tryggvi G. benti bakverðinum í hvaða átt ÍBV væri að spila. (".) Varðandi þá leikmenn sem vantaði hjá okkur þá þarf ekkert að ræða Sævar Gísla og mikilvægi hans, Stefán Ragnar hefur síðan varla misst úr leik sl. 2 ár og er einn efnilegasti miðvörður landsins.Davíð Birgis, Jón Sveins og Guðbrands verða síðan í 16 manna hópnum í ár, Gummi Ben segir til um byrjunarliðið samt ;) p.s. er þetta ekki svona helsti samkomustaður eyjamanna á netinu eða er einhver stuðningsmannasíða til?
Babu
Til baka...