ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Vitleysa í FRÉTTUM !10. apríl 2010
Síðan hvenær getur lið orðið Íslandsmeistari í 2. deild ? Má benda SKRIFURUM hjá FRÉTTUM að vera ekki með þessa vitleysu...sbr. meðf..........................................................................Föstudaginn 09. apríl kl. 08.10 Úrslitakeppni 2. deildar kvenna: Stelpurnar töpuðu fyrir Víkingi í undanúrslitum Stelpurnar töpuðu fyrir Víkingi í undanúrslitum Kvennalið ÍBV á ekki lengur möguleika á Íslandsmeistaratitli í 2. deild eftir tap fyrir Víkingi í undanúrslitum deildarinnar. Leikurinn fór fram í gærkvöldi á Seltjarnanesi þar sem úrslitakeppnin fer fram og tapaði ÍBV með níu mörkum, 24:15 en staðan í hálfleik var 11:9. ÍBV leikur því gegn FH um þriðja sætið en FH tapaði í gær fyrir Gróttu 27:23. Grótta og Víkingur leika því um Íslandsmeistaratitilinn í 2. deild.
hh
Vitleysa í FRÉTTUM !10. apríl 2010
Tja, það má nú deila um það hvort það megi segja það. Það er hægt að vera Íslandsmeistari í 4. flokki, Íslandsmeistari innanhúss, af hverju ekki í 2. deild? :p
BjarniBen
Vitleysa í FRÉTTUM !12. apríl 2010
Sælir félagar. Það hefur verið viðtekin venja í fleiri en einni íþrótt hér á landi að tala um Íslandsmeistara í neðri deildum. Þar sem keppni í 2. deild kvenna er algjörlega aðskilin keppni í 1. deild þá er að mínu viti ekkert að því að tala um Íslandsmeistaratitil í 2. deild.
Júlíus Ingason
Vitleysa í FRÉTTUM !13. apríl 2010
Sjálfur hefði ég nú haldið að Íslandsmeistarar væru einungis þeir sem væru sigurvegarar í efstu deild, sama hvort sem það er í meistaraflokki eða 3.flokki. Lið í 2.deild væri þá einfaldlega meistari í 2.deild. Þetta er hins vegar rétt hjá Júlla, að oft hefur þetta Íslandsmeistaraorð verið notað um meistara í neðri deildum. Mér finnst það hins vegar draga svolítið úr gildi orðsins "Íslandsmeistari" sem mér finnst að einungis hinir sönnu meistarar Íslands í viðkomandi íþrótt og flokki ættu að getað kallað sig...
Smári Jökull
Vitleysa í FRÉTTUM !14. apríl 2010
Smári Jökull hittir naglann á höfuðið hér.. Þetta er ekki viðtekin venja eins og Júlíus segir.. nema kanski hjá Fréttum... þ.e aðeins einn Íslandsmeistari í hverjum aldursflokki.. það sá sem vinnur efstu eða bestu deildina.. aðrir geta verið deildarmeistarar, sem er allt annar hlutur... eða sigurvegarar í sinum riðli...ekki Íslandsmeistarar.. það er bara einn aðili sem getur borið þann sæmdartitil. Það er bara þannig.. sammála því að annað sé vitleysa..
FF
Vitleysa í FRÉTTUM !16. apríl 2010
það er nú bara HSÍ sjálfir sem kjósa að kalla þetta Íslandsmeistara...
Hjördís
Vitleysa í FRÉTTUM !16. apríl 2010
Grótta Íslandsmeistarar 2.deildar kvenna Grótta varð í kvöld Íslandsmeistari 2.deildar kvenna eftir að hafa sigrað Víking 28-25 eftir framlengdan leik. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 24-24.... Þetta er tekið af vef Handboltasambands Íslands. Ætli þeim sé ekki best falið að ráða því hvað þeir kalla þetta?
Haukur
Vitleysa í FRÉTTUM !16. apríl 2010
"Íslandsmeistarar í 9. flokki drengja · 2. deild", "Stjarnan Íslandsmeistari í 7.flokki karla í 2.deild", "Íslandsmeistarar í 8. flokk drengja í 2. deild" Þessar þrjár fyrirsagnir eru allar teknar af vef Körfuknattleikssambands Íslands. Mönnum er frjálst að hafa hvaða skoðun á þessu sem er, en eins og sjá má er venjan að tala um Íslandsmeistara í neðri deildum, sama hvað raular og tautar.
Haukur
Vitleysa í FRÉTTUM !16. apríl 2010
Hvað segir "FF" þá við því þegar B- eða C-lið verða Íslandsmeistarar í yngri flokkunum? Verða þau ekki Íslandsmeistarar því þar eru augljóslega ekki bestu leikmennirnir í þessum aldursflokki?
Haukur
Vitleysa í FRÉTTUM !16. apríl 2010
Ég er ekki alveg að skilja pirringin út í Fréttir, þeir taka þetta af heimsíðu félagana, svo finnst mér ekkert að því að "þetta" heiti Íslandsmeistari hvað er að því að vera Íslandsmeistari í 2 deild eða í 4 fl kvenna eða karla? Ætli spurningin sé ekki oft sú það að vera bestur í sínum flokki á Íslandi, þaðan kemur orðið, skil ekki alveg afhverju þarf alltaf að horfa til þeirra sem eru í efstu deild, í fimleikum er þetta þannig að ´þú ert titlaður Íslandsmeistari í Almennum fimleikum þó svo að þeir einstaklingar séu ekki að keppa í áhaldafimleikum sem allir vita að er "efsta deild" í fimleikum.... en auðvitað er það þannig að sitt sýnist hverjum, Áfram IBV og fögnum öllum áföngum hjá sem IBV nær hvort sem það er í 4 fl eða meistarflokki. Íslandsmeistari eða hvað annað sem fólk vill kalla það
Unnur
Vitleysa í FRÉTTUM !17. apríl 2010
Skemmtileg umræða gott fólk. Svo það sé nú á hreinu þá ætlaði ég mér engan veginn að setja neitt út á félaga mína hjá Fréttum, hvað þá stelpurnar í handboltanum í ÍBV - enda tók ég það fram að þetta hefur tíðkast (eins og sést best á heimasíðum sérsambanda) þó svo að ég sjálfur sé á þeirri skoðun að þetta sé ekki rétt notkun orðsins. Aftur á móti finnst mér mjög eðlilegt að í B, C og D liða keppni yngri flokka geti aðilar í þessum liðum orðið Íslandsmeistarar - enda finnst mér ekki alveg hægt að bera saman yngri- og meistaraflokka hvað þetta varðar. Að sjálfsögðu fögnum við öllum árangri ÍBV, sama hvar hann næst og mér finnst það í raun ekki snerta þessa umræðu beint. ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar!
Smári Jökull
Til baka...