ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Styrktarkvöld ÍBV23. mars 2010
Glæsilegur 5 rétta kvöldverður og skemmtun þar sem Eyjastemmningin mun svífa yfir vötnum. Kokkar m.a. Grímur kokkur, Einsi Kaldi og Siggi í Turninum. Fram koma ma: Páll Magnússon (veislustjóri), Edda Andrésdóttir, Freyr Eyjólfsson, Ingó Idol, Hljómsveitin Buff, Hoffman, Gylfi Ægis, Bjartmar Guðlaugs og fleiri góðir. Hljómsveitin Tríkot heldur uppi stuðinu fram á morgun. Hægt er að nálgast miða hjá leikmönnum ÍBV, í síma 515-3270, í Týsheimilinu sími 481-2060 eða senda póst á trausti@ibv.is Magnað tækifæri til að styrkja ÍBV og fá um leið að upplifa stórglæsilegt kvöld sem seint mun gleymast. Miðaverð: 10.000 kr fyrir einstakling og 18.000kr. fyrir hjón.
Leikmenn ÍBV
Styrktarkvöld ÍBV23. mars 2010
Sæll.. þetta er svakalega flott dagskrá, ég er búinn að fjárfesta í miða!! Gott tækifæri til að styrkja klúbbinn og fá gott kvöld í staðinn..
Jói Jóa
Styrktarkvöld ÍBV23. mars 2010
Þetta er á Spot í kópavogi miðvikudaginn 31. mars daginn fyrir skírdag.. frídagar fimmtudag og föstudag!!
Leikmenn ÍBV
Styrktarkvöld ÍBV26. mars 2010
Ég mæti, flott kvöld...
Haukur
Styrktarkvöld ÍBV29. mars 2010
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á þetta magnaða kvöld. Allra síðustu miðarnir fást hjá Trausta í síma 698-2632 eða trausti@ibv.is
Trausti
Styrktarkvöld ÍBV29. mars 2010
Matseðillinn er kominn í hús... Þeir Siggi Grétars og Kári Fúsa hafa bæst í hinn föngulega hóp Landsliðskokka okkar Eyjamanna (Einsi Kaldi, Grímur og Siggi Gísla). Matseðillinn er eftirfarandi; Galadinner Í.B.V. Forréttur Gríms humarsúpa,með sérbökuðum brauðum að hætti Davíðs Arnórs bakara Milliréttur Skötuselur í tempura, með grænmetissalsa Og soyja-limegljáa a-la Siggi í Turninum Aðalréttur Nauta rib-eye að hætti Einsa Kalda, með fondant kartöflum fylltum með steinseljurót, baconkáli og púrtvínssósu Eftiréttur Eftirlæti sjókokka eyjanna, Súkkulaðibomba Súkkulaðitart með exótískum ávöxtumog vanillusýrópi, súkkulaðimús og hvítsúkkulaðikrem
Trausti Hjalta
Styrktarkvöld ÍBV29. mars 2010
Palli Grétars er auðvitað maðurinn en ekki Siggi :)
Trausti
Til baka...