- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- Orkan og ÍBV
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Agalegt14. mars 2010
Agalegt ef þetta er satt sem skrifað er á mbl.is um Tonny, að hann hafi líklega slitið krossbönd í leiknum gegn HK. Ekki erum við það fjölmennir í hópnum fyrir. Klárt mál að það þarf að gera ráðstafanir ef hann verður ekki meira með. Krossleggjum fingur og vonum það besta!
Smári Jökull
Agalegt14. mars 2010
Já þetta er ekki gott ef það eru krossböndin. Vonum það besta bara og vonum að knattspyrnuráð sé með eitthvað uppi í ermini.
Beggi
Agalegt14. mars 2010
Sji. Það var ekki gaman að mæta honum í Þorlákshöfn. Á hækjum!
BjarniBen
Agalegt14. mars 2010
Í hnénu eru tvö krossbönd og yfirleitt slíta menn bara annað, fremra eða aftara, yfirleitt fremra minnir mig. En ef svo er, þá spilar hann ekki fótbolta næstu sex til níu mánuði, það er á hreinu. Gríðarlegt áfall og setur öll plön með liðið í uppnám, það er ekkert flóknara en það.
Haukur
Agalegt15. mars 2010
Meiðslin eru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu!!! Mjög jákvætt. Nokkrar vikur frá!
KLM
Agalegt15. mars 2010
Til baka...
Heimir tekur samt fram í þessu viðtali að það sé samt allt svo bólgið að lítið sé hægt að sjá. Var það ekki þannig með Viðar að menn héldu fyrst að hann hefði ekki slitið krossbönd, sem reyndist svo vera raunin. Vonum bara að þetta fari allt á besta veg svo hann verði klár í slaginn sem fyrst! Hvað er annars að frétta af framherjamálum?
Smári Jökull













