ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Leikir helgarinnar07. mars 2010
Voru ekki einhverjir á leikjunum um helgina sem væru til í að deila með okkur hinum hvernig leikirnir voru. Annars verð ég að segja það að mér finnst spjallið hjá okkur vera afskaplega dapurt...
Haukur
Leikir helgarinnar09. mars 2010
Já það mætti alveg vera aðeins meira líf á spjallinu en það styttist óðum í sumarið og þá lifnar nú væntanlega yfir þessu. það væri gaman að heyra frá þeim sem hafa séð leikina í Lengjubikarnum og fá þeirra álit. Ég hef bara séð einn leik, gegn ÍR, og sá leikur vannst 6-0. Gaman að sjá Tryggva aftur í ÍBV-treyjunni og kominn smá talandi í þetta hjá okkur aftur.
Jón Óskar
Leikir helgarinnar13. mars 2010
Ég skal byrja... Ætlar enginn að tjá sig um þetta mál?? http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=88455
Beggi
Leikir helgarinnar13. mars 2010
Ég hélt að hann ætlaði í pásu. Ef hann ætlar að spila með FH í sumar þá hlýtur ÍBV að fara fram á greiðslu fyrir hann, hann á jú tvö ár eftir af samningi. Nema þeim samningi hafi verið sagt upp þegar hann ákvað að fara í pásuna, sem ég hef nú ekki trú á.
Smári Jökull
Til baka...