- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- Orkan og ÍBV
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Eitt og annað.20. febrúar 2010
Setti inn hérna smá pistil, sem virðist hafa farið í glatkistuna. En málið er það, að hérna er ég, en hvar eru allir aðrir áhugamenn og konur um fótboltann hérna í Eyjum ? Ég er kominn með fiðring í tærnar (raddböndin) og hlakka óskaplega til sumarsins. Vinur minn Heimir þjálfari, eða knattspyrnuráðsmenn eru hljóðir sem gröfin. Eitthvað hlítur að vera að frétta frá ykkur. Það jákvæða sem nú gerist er, að Knattspyrnuhúsið er að fæðast og verður vonandi tilbúið fyrir veturinn. Svo er kominn nýr framkvæmdastjóri og eitthvað tístir sjálfsagt í honum? ÁFRAM ÍBV.
Þorkell Sigurjónsson
Eitt og annað.20. febrúar 2010
Er líka kominn með fiðring. Held að þetta sé sumar sem getur farið í báðar áttir. Annað tímabil liða í efstu deild á Íslandi hefur oft reynst erfitt, Við höfum bætt við okkur mannskap og komum vonandi sterkir til leiks.
Geir Reynis
Eitt og annað.20. febrúar 2010
Menn mega ekki gera sér of miklar væntingar strax í upphafi, það tekur jú tíma að byggja upp sterkt lið og eins og Geir segir þá er annað árið oft erfitt fyrir liðin, sem sést best á því að bæði liðin sem féllu í fyrra voru á sínu öðru ári í deildinni. En hópurinn lítur vel út, þjálfarinn kann sitt fag og nú er bara að sýna góða frammistöðu á vellinum og ekki má vanta uppá hina einu sönnu Eyjabaráttu - hún fleytir mönnum jú oft ansi langt!
Smári Jökull
Eitt og annað.22. febrúar 2010
Strákarnir voru fínir gegn ÍR og deildarbikarinn byrjaði vel. Mér finnst Heimir vera á réttri leið með liðið og nýju leikmennirnir, Finnur, Ásgeir Aron og Tryggvi Guðmunds eru mikill fengur fyrir félagið. Það er allt í lagi að vera bjartsýnn Þorkell. Bjartsýni skaðar ekki skynsamt fólk :) Áfram ÍBV !
Jón Óskar
Eitt og annað.22. febrúar 2010
Mér finnst liðið hafa styrkt sig og verður gaman að fylgjast með því. En góðir hlutir gerast hægt og tel ég ekki að við séum að fara að hoppa frá neðrihlutadeildarinar upp í topp. Ég held að við verðum með sterkt lið sem mun láta finna fyrir sér og ná góðum úrslitum í sumar. Mér finnst þjálfarinn vera á réttri leið með liðið og er ég nokkuð bjarstýn á sumarið án þess að búa til einhverjar skýaborgir(þetta var mitt pólitíska já - nei svar).
Sigurður Einar
Eitt og annað.23. febrúar 2010
Til baka...
Sá í liðsuppstillingunni að Matt Garner hefur verið fjarri góðu gamni. Hvar er hann?
Haukur













