ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Leikurinn í gær18. desember 2009
Ákvað að prófa setja af stað nýjan þráð áður en spjallið hér deyr. Var einhver á leiknum gegn KR í gær. Frétti að þetta hefði endað 2:2 og ÍBV hafi tvívegis komist yfir. Veit einhver hverjir skoruðu?
Haukur
Leikurinn í gær18. desember 2009
Ég var á leiknum í gær og það er rétt að ÍBV komst 2-0 yfir með mörkum frá Eiði í fyrri hálfleik eftir hornspyrnu að því mér var sagt en ég kom í stöðunni 1-0. KR ingar áttu þó nokkur færi til að jafna en ÍBV menn voru að spila ágætllega að mínu mati þótt þeir virtust langt í frá jafn ferskir og KR ingar sem stilltu upp sæmilega sterku liði. Okkar menn áttu þó einnig eitthvað af færum og svo almennt að spila ágætlega þótt við töpuðum miðjunni svolítið þegar Heimir fór að rótera í liðinu, eðlilega enda nauðsynlegt að menn fái að spreyta sig í svona leikjum. Af okkar mönnum var Tryggvi mjög góður og tengdi vel saman vörn og sókn og fiskaði víti sem var víti að mínu mati þótt menn væru að saka hann um leikaraskap, svalur sem ís vippaði hann beint á markið og staðan 2-0 þegar um 20 mín voru eftir. Andri stóð sig vel ásamt Þórarni, Garner (sem hefði samt mátt gera betur í öðru marki KR en svona eru þessir undirbúningsleikir) og Eið. KR ingar sóttu vel í sig veðrið og skoruðu mark sem var klár rangstæða þannig að öll vörnin stoppaði en ekkert dæmt. Þeir sýndu svo að þeir voru í mun betra formi og jöfnuðu þegar 5 mín voru eftir með marki vinstra megin úr teignum en það hefði Fannar kannski mátt verja, reyndar var lýsingin þarna inni ömurleg svo ég ætla ekki að vera harður við hann. Veit ekki hverjir skoruðu fyrir KR. Horfði ekki á leikinn með það í huga að skrifa leikskýrslu :) Sem sagt ágætis leikur af okkar hálfu þar sem menn fengu að hlaupa og hafa fyrir hlutunum en greinilegt eins og alltaf með ÍBV að liðið æfir ekki nóg saman. Mér líst hins vegar ágætlega á þetta og held að ef menn eru einbeittir að við verðum jafnvel fyrir ofan miðja deild. Áfram ÍBV
Trausti
Leikurinn í gær08. janúar 2010
Er það rétt sem maður er að heyar að Bjarni Hólm sé á leiðinni heim ?
Austan
Leikurinn í gær09. janúar 2010
Þá austur á Seyðisfjörð?
Haukur
Til baka...