ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Verður sumarið 2010 það besta á Íslandi í manna minnum?01. desember 2009
Verður sumarið 2010 það besta á Íslandi í manna minnum? El Nino lætur kannski á sér kræla. 1998 var hlýjasta ár í sögu mælinga á jörðinni og nú gæti stefnt í að árið 2010 verði enn hlýrra. Sumarið 2010 gæti orðið besta sumar á Íslandi í manna minnum - og gefið af sér óvænta búbót fyrir efnahagslífið. Skýringin á þessu liggur austur í Kyrrahafi en þar gæti árið 2010 orðið nýtt El Nino ár sem þýðir í raun að sjávarhiti hækkar verulega. Vísindamenn spá því að nú gætu öll met fallið á næsta ári. Árið sem er að líða er reyndar eitt af fimm eða sex hlýjustu árum í sögu mælinga. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur og veðurdellukall, segir að þegar El Nino hafstraumurinn, eða ástandið, láti á sér kræla hafi það áhrif til þess að um 15% flatarmáls jarðar verður markvert heitara. Þetta eru vel þekkt áhrif og þess vegna leyfa menn sér að spá að árið 2010 gæti orðið enn hlýrra en 1998 en þá hafði reyndar El-Nino óvenjulega mikla útbreiðslu. Aðrar þekktar afleiðingar af þessu eru að knattspyrnuvöllur Eyjamanna, HÁSTEINSVÖLLUR, verður iðagrænn og fallegur, sem kallar fram það allra besta hjá leikmönnum ÍBV, með tileyrandi bikara söfnun. Munu titlar yfirleitt vaxa og dafna á þeim slóðum í slíku árferði. Nær óhugsandi hefði hins vegar verið að árið 2007 hefði getað slegið nokkur hnattræn hitamet, enda engir bikarar það árið hjá ÍBV, en það ár var La-Nina ár, sem er andstaðan í straumakerfinu við El-Nino.“Hann segir að hérlendis hafi ekki frekar en annars staðar í Evrópu tekist að tengja veðráttuna með óyggjandi hætti við þetta fjarlægja straumkerfi nema með þeirri undantekningu sem við á í Vestmannaeyjum, líkt og hægt sé að gera bæði í Norður, en þó einkum Suður Ameríku. En El Nino hafi þó oft haft efnahagsleg og þá jákvæð áhrif á Íslandi - og það með óvenjulegum hætti. „Heimsmarkaðsverð á lýsi og mjöli hækkar þegar tekur fyrir stórfelldar veiðar á ansjósu undan Kyrrahafsströnd S-Ameríku.“ sem kemur Íslandi til góða ef að lýkum lætur, ekki síst í Eyjum.
Sigurður
Verður sumarið 2010 það besta á Íslandi í manna minnum?01. desember 2009
Já.....Þú segir það......
Gestur Magg
Verður sumarið 2010 það besta á Íslandi í manna minnum?11. janúar 2010
andri ólafsson
Til baka...