- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- Orkan og ÍBV
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Nýjasta Stjarnan.30. október 2009
Eyjapeyji ekki að "nenna" þessum ferðalögum.. ha ? Vona bara að við fáum stráka til okkar sem eru tilbúnir að leggja á sig. Það þarf leikmenn hingað sem eru með karakter.. ekki spurning. Annars, gangi Atla vel á plastinu í Garðabænum................ En þótt síðar verði, verður hann leiður á því og ferðalögum í Garðabæinn úr Árbænum, og kemur á iðagrænan Hásteinsvöllinn ...og spilar á besta stað á Íslandi.. ................... En við verðum Íslandsmeistarar, það er búið að ákveða það.
TM
Nýjasta Stjarnan.30. október 2009
Kallinn tók bara svona til orða. Góður drengur og óskum við honum góðs gengis. Vonandi kemur hann til okkar síðar til að styrkja ÍBV.
Jójó
Nýjasta Stjarnan.30. október 2009
Alltaf eru til indælir stuðningsmenn sem eru tilbúnir að drulla yfir eyjamenn ef þeim þóknast ekki að spila með ÍBV.Ég var vitni að því forðum þegar að Tryggvi Guðmundsson var að spila sinn fyrsta leik með KR á Hásteinsvelli þegar að áhangendur gjörsamlega töpuðu sér í fúkyrðaflaumnum gagnvart drengnum.Ég var eiginlega forviða að hann skyldi almennt koma aftur hingað miðað við þessa lífsreynslu hans frá sínu HEIMAFÓLKI .Þetta er ekki til þess fallið að bjóða drengina okkar aftur heim í heiðardalinn.Atli er með fjölskyldu,er í námi og hefur sínar ástæður fyrir því að velja ekki ÍBV núna á þessum tímapunkti .Vonandi kemur hann aftur heim síðar. Vöndum okkur í umfjöllum því þessir drengir kynntust því svo sannarlega hvað það var að ferðast hér á milli lands og eyja í yngri flokkunum til þess að taka þátt í keppnum fyrir hönd ÍBV.Batnandi ferðatíðni með komu Bakkafjöru á eftir að breyta miklu fyrir okkur í þessum efnum.'Afram ÍBV.
Dóri
Nýjasta Stjarnan.30. október 2009
Svo fleiri leggi orð í belg....Er ekki allt í lagi að hafa skoðun ? Þú hefur þinar.. Asnalegt af þér að vera rifja þetta upp, löngu gleymt og grafið.... en þú þarft að vera með svona comment, "Dóri" Mín skoðun er einfaldlega sú að það hefði verið gaman að sjá þennan eyjapeyja sýna alvöru karakter og koma heim.. þegar eitthvað alvöru er að fara að gerast hér... en hann hefur örugglega ástæður.. það er bara svo.. þetta er frjálst land... svona er Island í dag...
jj
Nýjasta Stjarnan.30. október 2009
Já, en skrítið að Tryggvi skyldi þá koma heim og verða Íslandsmeistari og setja markamet... þannig að þetta virðist bara vera í hausnum á Dóra. En tilgangurinn helgar meðalið, að vera leiðinlegur.
pottur
Nýjasta Stjarnan.30. október 2009
Óska Atla bara til hamingju með vistaskiptin. Auðvitað þarf hann að hugsa um sig og sína fjölskyldu. Hann á eftir að koma og spila fyrir okkur seinna. En bara gott að hann er farinn frá KR og þangað sem hæfileikar hans fá að njóta sín.
Geir Reynis
Nýjasta Stjarnan.31. október 2009
Við skulum nú ekki gleyma því að Tryggvi og Atli eru nú ekki á sama stað á ferlinum. Ferilinn hjá Tryggva hefur verið stórglæsilegur en honum fer brátt að ljúka og er hann að koma heim núna til þess að ljúka honum þar sem hann byrjaði. (frábært að fá hann).
Atli er að spila sín bestu ár um þessar mundir og hefur komið sér vel fyrir í bænum með sinni fjölskyldu, en hún gengur fyrir að sjálfsögðu og tel ég að Stjarnan hafi látið hann fá góðan samning.
Staðan í dag er einfladlega þaning að menn eru nánast atvinumenn á íslandi og fótboltaferill er stuttur og þarf þá að reyna að ná eins langt í boltanum og hægt er og fá eins mikið út úr honum í leiðini.
Ég óska Atla góðs gengis
Sigurður Einar
Nýjasta Stjarnan.31. október 2009
Ég hóf ekki umræðuna hér með því að lítilsvirða leikmanninn.Ég var að benda á að við skyldum fara varlega í því að krítisera þá sem ekki vilja koma til ÍBV.Sumir eru greinlega ekki læsir hér.
Dóri
Nýjasta Stjarnan.01. nóvember 2009
Til baka...
Svo maður færi þetta nú upp á hærra plan, hvers manns Stjarna er hér til umræðu?
En annars, lítið sem hægt er að röfla yfir þessu.
Eyjamaður sem er góður í fótbolta var laus allra mála, það var talað við hann, hann fór annað. Frekar basic. Hefði verið skemmtilegra hefði hann viljað taka slaginn en hann á eftir að standa sig vel!
BjarniBen













