ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Kristín Erna áfram hjá ÍBV27. október 2009
Frábært að allar stelpurnar hafa þar með ákveðið að halda áfram og gefast ekki upp á að kokma liðinu sínu í efstu deild!
Geir Reynis
Kristín Erna áfram hjá ÍBV27. október 2009
Það er náttúrulega skandall að lið sem tapar bara tveimur leikjum á tímabilinu (gegn Völsungi og Fylki) fari ekki upp um deild. Þær hljóta að gera það á næsta ári enda með langbesta liðið.
BjarniBen
Kristín Erna áfram hjá ÍBV28. október 2009
Töpuðu þær ekki fyrir FH líka? Veit svo ekki betur en að HK/Víkingur töpuðu bara 2 leikjum
Lísa
Kristín Erna áfram hjá ÍBV28. október 2009
þett er auðvitað fáranlegt fyrirkomulag á deildarkeppni, algjört yfirburðalið fellur út á einum leik... skoðið bara stöðuna eftir riðlakeppnna.. það sama má kanski segja um HK/Viking, getulega áttu þessi lið auðvitað að fara upp. En þetta verður til þess að þær verða enn betur í stakk búnar til að takast á við efstu deil þega þetta tekst, vonandi næsta sumar...
jj
Kristín Erna áfram hjá ÍBV28. október 2009
Vil reyndar benda á að uppsetning KSÍ á úrslitakepninni var stórgölluð. Þeir gáfu sér fyrirfram að liðin sem urðu í 2 efstu sætum riðlanna myndu vinna sína leiki og röðuðu leikjunum í framhaldinu eftir því. Hins vegar unnu öll liðin úr riðlinum sem ÍBV var í, viðureignir sínar. Og í stað þess að láta liðið sem vann riðilinn njóta þess var það látið leika gegn FH, en ekki liðinu sem endaði í 4. sæti riðilsins sem hefði verið elðlilegt.
Geir Reynis
Kristín Erna áfram hjá ÍBV28. október 2009
Já og líka það að í staðinn fyrir að láta stöðuna í deildinni ráða úrslitum eftir 2-2 samanlagða jafnteflið var notast við útivallarmörk. Sem er engan veginn sanngjarnt, þegar auðvelt er að sjá hvort liðið stóð sig betur í sumar.
BjarniBen
Kristín Erna áfram hjá ÍBV29. október 2009
Lísa, ÍBV tapaði ekki fyrir FH - heldur gerðu liðin tvö jafntefli í úrslitakeppninni. Í deildinni vann svo ÍBV seinni leikinn en fyrri leikurinn endaði með jafntefli. Það er auðvitað fáránlegt að í 14 liða deild skuli 8 lið fara í úrslitakeppni. Segjum sem svo að eitt lið sé öruggt í 4.sæti, komist ekki ofar og komist ekki neðar, þegar í lok júlí (með 2-3 leiki eftir af deild). Þá er það lið öruggt í úrslitakeppni og gæti ákveðið að styrkja sig með 3 sterkum erlendum leikmönnum fyrir úrslitakeppnina þar sem félagaskiptaglugginn lokar ekki fyrr en 31.júlí. Auðvitað eiga bara tvö efstu liðin í hvorum riðli að fara áfram og mætast í undanúrslitum þar sem sigurliðin fara svo upp um deild. Varðandi HK/Víking þá held ég að það lið hafi ekkert verið sterkara en t.d. Haukar eða FH - málið var að ÍBV var með sterkasta liðið í deildinni en náði því miður ekki að sýna það í þessum tveimur leikjum gegn FH sem réðu úrslitum á tímabilinu.
Smári Jökull
Kristín Erna áfram hjá ÍBV31. október 2009
Hættum að grenja þetta. Við mössum þetta bara á næsta ári og verðu í efstu deild sumarið 2011. Punktur!
Haukur
Til baka...