- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- Orkan og ÍBV
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Hvað þarf að gera?13. október 2009
Hvernig væri að hressa aðeins uppá þetta. Tók eftir því að spjallsíður flestra þeirra liða sem hafa spjall á annað borð eru farnar að ræða mikið um hvað mönnum fannst um þetta tímabil og hvað þurfi að gera fyrir það næsta. Hvernig væri að starta þessari umræðu hér og hafa hana opna og skemmtilega. Mín skoðun er reyndar mjög einföld. Ef við gerum ekkert að þá tel ég að hópurinn sé ekki nægilega sterkur til að bjarga sætinu að ári. Mér fannst grátlegt að sjá til ÍBV í seinustu umferðum mótsins. Englendingarnir tóku botnin úr þessu liði og fóru með hann með sér til Englands. Fjárhagsstaða félagsins er erfið eins og menn hafa talað um og efast ég ekkert um sannleiksgildi þeirra orða. Það að koma deildunum á réttan kjöl er hlutur sem er möst, og ætla ég ekkert að gera lítið úr þeirri vinnu sem framundann er í því.
Beggi
Hvað þarf að gera?14. október 2009
Það þarf að lokka 3-4 góða leikmenn til okkar. Það væri fínt ef hægt væri að fá Íslendinga, því það tekur alltaf sinn tíma að venja útlendingana við. Krónan er líka veik þ.a. útlendingurinn er ábyggilega á svipuðu verði og Íslendingurinn. Þurfum menn í staðinn fyrir Englendingana og Úgandamennina. Því miður þá eru okkar ungu eyjamenn ekki nógu sterkir til að leysa þessa menn af hólmi.
Klikk
Hvað þarf að gera?14. október 2009
Okkar ungu leikmenn eru alveg nógu sterkir, en ekki einir og sér og því nauðsynlegt að fá liðsstyrk. Auðvitað væri frábært að fá sterka Íslendinga til liðs við okkur og Tryggvi hefði verið fínn kostur, en sá möguleiki virðist vera farinn núna.
Við þurfum klárlega framherja og það á að vera forgangsatriði. Svo þurfum við 1-2 miðjumenn og varnarmann. Auðvelt að sitja hér við tölvuna og gaspra svona um þetta, en ég treysti Heimi og knattspyrnuráðinu 100% fyrir þessu.
En hvernig er með Andy og Gústa, er komið á hreint hvað verður með þá?
Smári Jökull
Hvað þarf að gera?16. október 2009
Mér sýnist við nokkuð sammála um að það þurfi að styrkja pakkann. Spurningin sem kannski liggur í loftinu er sú, hvert á að vera markmið liðsins næsta sumar ?
Jón Óskar
Hvað þarf að gera?16. október 2009
Til baka...
Ég tel að markmiðið fyrir næsta sumar sé einfaldlega að halda sér í deildini.
Það er oft talað um það að annað árið sé erfiðara en það fyrsta og því tel ég það mikilvægt að liðið nái stöðuleika í úrvaldsdeild og verði ekki eithvað jojo lið á milli úrvals og 1.deildar eins og sum lið detta í.
Við höldum áfram að byggja á ungu strákunum og gera þá einfaldlega betri en þurfum að fá til okkar 4-5 leikmenn til þess að dekka brothvarf útlendingana og styrkja liðið.
Sigurður Einar













