U-19 ára landslið Íslands tryggði sér í vikunni rétt til að leika í milliriðli Evrópumóts landsliða í knattspyrnu 2012.  Íslenska liðið byrjaði á því að sigra Slóveníu 2-1.  SÍsí Lára kom inná þegar um 15.mínútur voru til leiksloka.  Í næsta leik sigraði Ísland lið Kazakstan 3-0 og í lokaleiknum sigraði lið Íslands lið Wales 2-0.  Sísí Lára kom inná þegar um 10.mínútur voru eftir af leiknum.  Þess má geta að Sisí Lára er á yngra ári í þessu landsliði og því góður árangur að komast í lokahópinn.
 
IBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur.