Íþróttaakademía FÍV og ÍBV                      
 
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og ÍBV Íþróttafélag hafa ákveðið að setja á stofn Íþróttaakademíu í handknattleik og knattspyrnu fyrir pilta og stúlkur í FÍV. Íþróttaakademían er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi og er boðið upp á 3 námseiningar á önn.
 
Með fjölbreyttum og skipulögðum æfingum og bóklegum kennslustundum verður unnið markvisst að því að gera nemendum kleift að bæta sig  bæði líkamlega og andlega. Æfingarnar skiptast í tækniæfingar í viðkomandi íþróttagrein og styrktarþjálfun sem er nauðsynleg til að ná hámarksárangri í íþróttum.
 
Bóklega kennslan mun fela í sér nauðsynlegan fróðleik fyrir þá sem ætla að skara fram úr. Þar verður m.a. farið í næringarfræði, íþróttasálfræði og þjálffræði, þar sem fjallað verður um starfsemi líkamans og þá hluti sem hafa áhrif á afreksgetu í íþróttum. Leitast verður við að auka sjálfstraust og bæta sjálfsmynd nemenda til þess að bæta árangur þeirra.
 
Nemendur læra að vera hluti af liðsheild þar sem þeir þurfa bæði að gefa af sér og geta unnið vel með öðrum. Þeir þurfa að tileinka sér þann aga og lífsstíl sem þarf til að ná hámarksárangri í íþróttum, læra að tileinka sér hugsunarhátt afreksmanna, hugsa vel um eigin líkama, borða hollan og góðan mat, temja sér heilbrigt líferni og vera reglusamir í alla staði.
 
Nemendur þurfa að gangast undir strangar mætinga- og agareglur enda er reglusemi og dugnaður undirstaða velgengni í íþróttum.
 
Neysla áfengis, tóbaks og fíkniefna er bönnuð í Akademíunni og getur brot á þeim reglum valdið brottrekstri úr henni.