- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- ÍBV gegn einelti
- Blogg síður flokka
Nýjast á hliðarsíðum
Þeir sem nú þegar eru staðfestir í dalinn.
http://www.dalurinn.isMunið greiðslur 5. maí og 5. júní
http://www.shellmot.is
Friðrik Dór mætir á kvöldvökuna
http://paejumot.ibv.isUm síðustu helgi var keppt í Íslandsmótinu í handbolta í 5.flokki yngra ári. Mótið fór fram í Kópavogi og er skemmst frá því að segja að A-lið ÍBV fór á kostum í mótinu og endaði í öðru sæti í efstu deild. Mótafyrirkomulagið er þannig að fram fara fimm mót yfir veturinn og sameiginlegur árangur úr þeim ákvarðar hvaða lið verður Íslandsmeistari.
ÍBV byrjaði mótið mjög vel, vann Hauka 16-5, næst var leikið við HK og vannst sá leikur 12-11, síðan var leikur við Þrótt sem vannst einnig 12-11. Þá var komið að hreinum úrslitaleik við FH enda bæði liðin búin að vinna alla sína leiki. Okkar menn áttu mjög góðan fyrri hálfleik og voru yfir 6-4 en í síðari hálfleik seig á ógæfuhliðina og leikurinn tapaðist 7-11. Síðasti leikurinn var svo við Stjörnuna og tapaðist hann 14-17 en sá leikur skipti litlu máli því að annað sætið var tryggt. Strákarnir stóðu sig allir með sóma og dreifðist markaskorunin á alla útileikmenn liðsins og að auki var markvarslan mjög góð.
B-liðið varð í þriðja sæti í sinni deild, unnu tvo leiki og töpuðu tveim. Þeir unnu HK 11-10 og KA 13-6 en töpuðu fyrir Þór 7-9 og Gróttu 9-13. Gaman var að sjá til strákanna því að baráttan og leikgleðin var mikil.













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011