Þegar 5 umferðir eru eftir af Íslandsmótinu situr ÍBV í efsta sæti.  Staða sem ansi fáir spáðu í upphafi móts.
Mörgum fannst það áfall að vinna ekki Grindavík í síðasta heimaleik .  Vissulega lék liðið ekki eins vel og stefnt var að en andstæðingarnir voru okkur erfiðir og Íslandsmótið í ár hefur verið ákaflega jafnt og spennandi. Engin leikur er fyrirfram unnin og öll liðin taka stig hvort af öðru.  Strákarnir áttu hins vegar flotta endurkomu í Árbænum og sigruðu Fylki á eftirminnilegan hátt þrátt fyrir mikið mótlæti.

Næstu fjórar umferðir verða ákaflega spennandi og við Eyjamenn skulum njóta að vera þátttakendur í þessari baráttu.

Við leikmennirnir þökkum frábæran stuðning í sumar.  Hann hefur vaxið og náði hámarki á Kópavogs og Fylkisvelli.  Vonandi getum við framkallað þá stemmingu það sem eftir er af Íslandsmótinu.
Hvert stig er félaginu ákaflega mikilvægt.  Við þurfum 3 stig til að gulltryggja markmiðin okkar “að ná þessu dýrmæta Evrópusæti”.  Það verður engin leikur auðveldur og við þurfum á öllum mögulega stuðningi að halda þessar síðustu 4 umferðir.    

Þessi leikur gegn KR er mikilvægasti leikur sem ÍBV hefur leikið síðustu ár.  Ég vona að þú kæri stuðningsmaður mætir á Hásteinsvöllinn á sunnudaginn og styðjir okkur í þeim leik.  Þó úrslit Íslandsmótsins ráðist ekki í þessum leik er hann báðum liðunum ákaflega mikilvægur.

Eins og staðan er í dag eru fjögur lið sem eiga möguleika að vinna Íslandsmeistaratitilinn, ÍBV, UBK, FH og KR og úrslitinn munu aldrei ráðast fyrr en í síðustu umferð.  Þegar svona mjótt er á munum ráðast úrslitin oft á smáatriðunum því getur það verið ÞÚ sem munt skipta sköpum þegar upp er staðið.  LÁTTU ÞITT EKKI EFTIR LIGGJA -
 
Leikmenn og fylgdarlið ÍBV.