- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- Skipurit
- ÍBV gegn einelti
Nýjast á hliðarsíðum

Gleðilegt nýtt ár
http://www.dalurinn.is
Drög að niðurröðun í Herjólf
http://www.shellmot.is
Drög að Herjólfsferðum á Pæjumót TM
http://paejumot.ibv.is
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.
http://www.eyjamenn.is

ÍBV-íþróttafélag og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum standa að íþrótta-akademíu sameiginlega. Nemendur í FÍV geta unnið sér inn einingar og samhliða því fengið markvissa þjálfun sem skilar þeim lengra í sinni grein.
Reglur akademíunnar eru eftirfarandi:
Nemendur sem mæta 100% á allar æfingar og í alla tíma, ljúka a.m.k. 80% af þeim einingum sem þeir stunda í skólanum og neyta ekki áfengis, tóbaks né annara fíkniefna, munu fá tvo mánuði af fjórum endurgreidda í lok annar.
Neysla áfengis, tóbaks og annara fíkniefna er bönnuð í Íþróttaakademíunni, við fyrsta brot þá missir viðkomandi rétt á endurgreiðslunni, við annað brot þá fær nemendi stranga aðvörun og við þriðja brot er honum vísað úr Akademíunni. Á þessu verða engar undantekningar.
Neysla áfengis, tóbaks og annara fíkniefna er bönnuð í Íþróttaakademíunni, við fyrsta brot þá missir viðkomandi rétt á endurgreiðslunni, við annað brot þá fær nemendi stranga aðvörun og við þriðja brot er honum vísað úr Akademíunni. Á þessu verða engar undantekningar.
Kennarar við akademíuna eru:
Árni Stefánsson. Forstöðumaður. Tækniæfingar í handknattleik og bóklegir tímar. arnistef@ibv.is
Árni Stefánsson. Styrktaræfingar. arnistef@ibv.is
Gregg Ryder. Tækniæfingar í knattspyrnu. gregg@ibv.is
Íþróttaakademía FÍV og ÍBV
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og ÍBV Íþróttafélag hafa ákveðið að setja á stofn Íþróttaakademíu í handknattleik og knattspyrnu fyrir pilta og stúlkur í FÍV. Íþróttaakademían er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi og er boðið upp á 3 námseiningar á önn.
Með fjölbreyttum og skipulögðum æfingum og bóklegum kennslustundum verður unnið markvisst að því að gera nemendum kleift að bæta sig bæði líkamlega og andlega. Æfingarnar skiptast í tækniæfingar í viðkomandi íþróttagrein og styrktarþjálfun sem er nauðsynleg til að ná hámarksárangri í íþróttum.
Bóklega kennslan mun fela í sér nauðsynlegan fróðleik fyrir þá sem ætla að skara fram úr. Þar verður m.a. farið í næringarfræði, íþróttasálfræði og þjálffræði, þar sem fjallað verður um starfsemi líkamans og þá hluti sem hafa áhrif á afreksgetu í íþróttum. Leitast verður við að auka sjálfstraust og bæta sjálfsmynd nemenda til þess að bæta árangur þeirra.
Nemendur læra að vera hluti af liðsheild þar sem þeir þurfa bæði að gefa af sér og geta unnið vel með öðrum. Þeir þurfa að tileinka sér þann aga og lífsstíl sem þarf til að ná hámarksárangri í íþróttum, læra að tileinka sér hugsunarhátt afreksmanna, hugsa vel um eigin líkama, borða hollan og góðan mat, temja sér heilbrigt líferni og vera reglusamir í alla staði.
Nemendur þurfa að gangast undir strangar mætinga- og agareglur enda er reglusemi og dugnaður undirstaða velgengni í íþróttum.
Neysla áfengis, tóbaks og fíkniefna er bönnuð í Akademíunni og getur brot á þeim reglum valdið brottrekstri úr henni.













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011