Yngri flokkar - Fótboltaæfingar yngri flokka

20.okt.2020  13:25

Hefjast aftur á morgun eftir frí

Fótboltaæfingar hefjast aftur á morgun miðvikudag eftir haustfrí. Jonathan Glenn verður áfram yfirþjálfari en tveir nýjir þjálfarar hafa bæst í hópinn. Þórhildur Ólafsdóttir þjálfaði síðast hjá okkur 2015 en auk þess var hún fyrirliði mfl. kvenna í fótbolta. Todor Hristov kemur til okkar frá Einherja á Vopnafirði þar sem hann þjálfaði yngri flokka ásamt því að spila með mfl. Einherja sl. 5 ár. Við bjóðum þau bæði velkomin til starfa hjá félaginu. 

Við erum stolt af þessum flotta þjálfarahóp og hlökkum til næsta tímabils, æfingatöfluna er hægt að sjá hér

VIð viljum minna á að enn eru í gildi sóttvarnarreglur og biðjum við því foreldra um að koma ekki að óþörfu í Týsheimilið eða Herjólfshöllina.