Handbolti - Ásta Björt skrifar undir nýjan samning

02.júl.2020  09:53

Ásta Björt Júlíusdóttir hefur gert nýjan 1 árs samning við ÍBV!

Ásta er eins og allir vita uppalin Eyjastelpa sem hefur leikið vel með liðinu undanfarin ár. Á síðasta tímabili fékk Ásta Björt ennþá stærra hlutverk í liðinu en áður og er óhætt að segja að hún hafi nýtt sér það vel. Hún skoraði 111 mörk í 18 leikjum í Olísdeild kvenna og var einn markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt því að skora 82 mörk í 13 leikjum með U-liðinu í Grill 66 deild kvenna.

Við erum virkilega sátt með að hafa Ástu Björt áfram í liði ÍBV og hlökkum til samstarfsins í vetur.