Handbolti - Ásgeir Snær Vignisson til ÍBV!

10.mar.2020  09:41
ÍBV hefur gengið frá tveggja ára samningi við Ásgeir Snæ Vignisson. Ásgeir er örvhentur leikmaður, sem getur bæði spilað sem skytta og hornamaður. Hann hefur leikið allan sinn feril með Val en hefur ákveðið að ganga til liðs við okkur eftir yfirstandandi tímabil.
 
Ásgeir hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og lék meðal annars á lokakeppni heimsmeistaramóts U21 árs liða síðasta sumar með íslenska liðinu.
 
Við hjá ÍBV erum spennt fyrir samstarfinu, hlökkum til að fá Ásgeir til Eyja og bjóðum hann og hans fólk velkomið í ÍBV-fjölskylduna.
 
Áfram ÍBV
Alltaf, alls staðar!