Handbolti - Elliði Snær og Kristján Örn valdir í A landsliðshóp Íslands

07.okt.2019  15:56

Guðmundur Guðmundsson þjálfari karlalandsliðs Íslands í handknattleik valdi í dag 19 manna hóp til æfinga fyrir leikina tvo við Svía í lok október.

Í hópnum voru tveir leikmenn ÍBV, þeir Elliði Snær Viðarsson og Kristján Örn Kristjánsson!


Við hjá ÍBV erum ótrúlega stolt af strákunum okkar og hlökkum við til að fylgjast með þeim í þessu spennandi verkefni.

 

Hópurinn er eftirfarandi:

Markmenn:
Ágúst Elí Björgvinsson, IK Sävehof 29/0
Grétar Ari Guðjónsson, Haukar 7/0
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG 7/0

Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson, Lemgo 61/136

Vinstri skytta:
Aron Pálmarsson, Barcelona 139/545
Ólafur Guðmundsson, IFK Kristianstad 113/207

Leikstjórnendur:
Elvar Örn Jónsson, Skern 24/74
Gísli Þorgeir Kristjánsson, Kiel 21/28
Haukur Þrastarsson, Selfoss 10/9
Janus Daði Smárason, Aalborg Håndbold 35/41

Hægri skytta:
Kristján Örn Kristjánsson, ÍBV 5/1
Teitur Einarsson, IFK Kristianstad 16/15 

Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer HC 105/311
Sigvaldi Guðjónsson, Elverum 18/31

Línumenn:
Arnar Freyr Arnarsson, GOG 45/65
Elliði Snær Viðarsson, ÍBV 4/3
Sveinn Jóhannsson, Sönderjyske 5/14
Ýmir Örn Gíslason, Valur 31/14

Varnarmenn:
Daníel Þór Ingason, Esbjerg 30/

Þeir Guðjón Valur Sigurðsson, Stefán Rafn Sigurmannsson, Ólafur Gústafsson og Ómar Ingi Magnússon eiga allir við smávægileg meiðsli að stríða og eru því ekki valdir að þessu sinni.