Handbolti - Ester skrifar undir tveggja ára samning

23.júl.2019  18:54

Ester Óskarsdóttir skrifaði fyrr í dag undir nýjan samning við ÍBV, en samningurinn er til tveggja ára.

Það er mikill fengur fyrir ÍBV að framlengja samninginn við Ester og tryggja okkur krafta hennar áfram. Hún hefur leikið mjög vel með liðinu og verið í lykilhlutverki síðustu ár ásamt því að hafa verið einn allra besti leikmaður Olísdeildar kvenna.

 

Áfram ÍBV

Alltaf, alls staðar!