Handbolti - Sandra Dís og Björn Viðar framlengja samninga sína

17.júl.2019  14:03

Það er okkur ánægja að tilkynna að Sandra Dís Sigurðardóttir og Björn Viðar Björnsson hafa bæði skrifað undir eins árs samninga við félagið.

Bæði spiluðu þau stór hlutverk hjá ÍBV handboltaliðunum á síðustu leiktíð og því mikilvægur áfangi að tryggja okkur krafta þeirra áfram.

Meðfylgjandi eru myndir af Söndru Dís og Birni Viðari, en með Söndru Dís á myndinni er Vilmar Þór, nýráðinn framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV.