Fréttir af aðalfundi

18.apr.2018  12:56

Aðalfundur ÍBV íþróttafélags var haldinn þann 17. apríl síðastliðinn. Formaður félagsins fór yfir skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóri félagsins fór yfir ársreikning fyrir árið 2017 sem og yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2018. Var þetta allt samþykkt einróma. Rekstur félagsins gekk vel á síðasta ári og hefur félagið borgað upp allar sínar langtímaskuldir. Breytingar urðu í stjórn félagsins þar sem þær Íris Róbertsdóttir formaður og Aníta Óðinsdóttir varaformaður gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi nefndarstarfa.

Ný stjórn félagsins er skipuð:   

  • Unnar Hólm Ólafsson – formaður
  • Guðbjörg Erla Ríkharðsdóttir
  • Helgi Níelsson
  • Stefán Örn Jónsson
  • Unnur Sigmarsdóttir
  • Páll Magnússon – varamaður
  • Snjólaug Elín Árnadóttir – varamaður

 

Einnig eiga deildir félagsins tvo fulltrúa í aðalstjórn

  • Haraldur Bergvinsson – fulltrúi knattspyrnudeildar
  • Karl Haraldsson – fulltrúi handknattleiksdeildar

 

Fyrir hönd ÍBV íþróttafélags vil ég þakka þeim Írisi og Anítu fyrir góð störf.

Dóra Björk