Yngri flokkar - Clara í úrtakshóp U-16 hjá KSÍ

01.nóv.2017  08:41

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U-16 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur valið hóp til þátttöku á úrtaksæfingum 10.-12. nóvember nk.

Jörundur Áki valdi Clöru Sigurðardóttur frá ÍBV, en Clara hefur verið að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur og átti meðal annars góða innkomu í bikarleiknum í sumar, þegar meistaraflokkurinn okkar tryggði sér bikarmeistaratitilinn.

ÍBV óskar Clöru innilega til hamingju með valið.