Arnór Gauti og Felix Örn í lokahóp U-21

30.okt.2017  09:23

Mæta Spáni og Eistlandi í riðlakeppni EM19

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U-21 karla, hefur valið þá Arnór Gauta Ragnarsson og Felix Örn Friðriksson í hópinn sem mætir Spáni 9. nóvember og Eistlandi 14. nóvember í riðlakeppni EM19 og fara báðir leikirnir fram ytra.

ÍBV óskar þeim innilega til hamingju með valið og óskar þeim góðs gengis.