Tveir frá ÍBV í U-17 hjá HSÍ

08.jún.2017  08:11

Heimir Ríkarðsson landsliðsþjálfari U-17 hjá HSÍ hefur valið tvo hópa fyrir verkefni sumarsins en liðið tekur þátt í European Open í Svíþjóð í byrjun júlí og Ólympíuhátið Evrópuæskunnar í lok júlí.

Heimir valdi frá ÍBV Pál Eiríksson í Ólympíuhópinn og Ívar Loga Styrmisson í Evrópuhópinn.  Báðir eru þessir peyjar mjög efnilegir og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.

ÍBV óskar peyjunum innilega til hamingju með þennan árangur