ÍBV Íþróttafélag Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

20.jan.2017  11:30

ÍBV Íþróttafélag varð fyrst fyrirmyndarfélag ÍSÍ árið 2012. 18. janúar sl. kom fulltrúi frá ÍSÍ og afhenti formönnum knattspyrnu og handknattleiksdeilda ásamt formanni ÍBV Íþróttafélags viðurkenningu um endurnýjun sem gildir til ársins 2020. Við sama tilefni fékk Golfklúbbur Vestmannaeyja einnig viðurkenningu á endurnýjun.

Á myndinni eru:

Páll Þ. Hjarðar formaður knattspyrnudeildar karla, Sigþóra Guðmundsdóttir formaður knattspyrnudeildar kvenna, Karl Haraldssn formaður handknattleiksdeildar, Íris Róbertsdóttir formaður ÍBV Íþróttafélags, Einar Gunnarsson golfkennari hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja og Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir fulltrúi ÍSÍ. 

Hér má nálgast handbók ÍBV Íþróttafélags sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.