Sigríður Lára Garðarsdóttir íþróttamaður Vestmannaeyja 2016

19.jan.2017  10:08

Felix Örn Friðriksson íþróttamaður æskunnar.

Í gær 18. janúar útnefndi íþróttabandalag Vestmannaeyja Sigríði Láru Garðarsdóttur knattspyrnukonu íþróttamann Vestmannaeyja fyrir árið 2016. Felix Örn Friðriksson var útnefndur íþróttamaður æskunnar fyrir 2016. ÍBV íþróttafélag óskar þessum glæsilegu fulltrúum félagsins til hamingju með valið.

Á hófinu voru landsliðsmenn einnig heiðraðir, Íþróttabandalag Vestmannaeyja heiðraði einnig nokkra einstaklinga fyrir þeirra störf í þágu íþrótta í Eyjum. Fulltrúi ÍSÍ var á hófinu og afhenti ÍBV íþróttafélagi gæðaviðurkenningu fyrir íþróttastarf og rétt til að kalla sig áfram Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Einnig veitti fulltrúi ÍSÍ viðurkenningar á hófinu, Gísli Valtýsson fékk gullmerki ÍSÍ og Þór Vilhjálmssonar fékk heiðurskross ÍSÍ.

Á myndunum eru þeir félagsmenn ÍBV íþróttafélags sem voru heiðraðir í gær.