Tveir frá ÍBV í U-16 hjá KSÍ

17.jan.2017  13:47

Dean Martin nýráðinn landsliðsþjálfari U-16 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi í dag tvo leikmenn ÍBV í úrtakshóp sem æfir saman helgina 27-29.janúar í Reykjavík.  Dean valdi þá Arnar Breka Gunnarsson og Heiðar Óla Guðmundsson í hópinn.

Dean mun skoða fleirri leikmenn á næstunni en hann kemur til eyja í næsta mánuði með hæfileikamótun KSÍ.

ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.