Fótbolti - Kristján Guðmundsson ráðinn þjálfari

15.okt.2016  15:59

meistaraflokks karla í knattspyrnu

Kristján Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá ÍBV. Samningur Kristjáns er til þriggja ára.

 

Kristján er reyndur þjálfari sem hefur bæði þjálfað meistaraflokka á Íslandi og í Færeyjum. Hann stýrði HB Þórshöfn til meistaratitils í Færeyjum árið 2010 og Keflavík til bikarmeistaratitils árið 2006.

Litlu munaði að Keflavík yrði Íslandsmeistari undir hans stjórn árið 2008.

 

Kristján hefur meðal annars sinnt þjálfun hjá Þór 2001-2002, Keflavík frá 2005-2009, Val 2011-2012 og Keflavík 2013-2015. Önnur lið sem hann hefur þjálfað eru ÍR og HB Þórshöfn en síðast var hann þjálfari Leiknis R.

 

Knattspyrnuráð ÍBV fagnar því að fá jafn reyndan þjálfara og Kristján til starfa og væntir mikils af honum á komandi árum.

Hann verður búsettur í Vestmannaeyjum og mun koma að mótun og stefnu yngri flokka félagsins.

 

Fyrir hönd knattspyrnuráðs ÍBV
Páll