Handbolti - Ester Óskarsdóttir valin í A landsliðið

24.sep.2016  08:23

Axel Stefánsson þjálfari A-landsliðs kvenna hefur valið 17 leikmenn til að taka þátt í æfingum og móti í Póllandi dagana 4. - 9. október 2016.

Á mótinu leika landslið Íslands, Svíþjóðar, Póllands og Slóvakíu. Þetta eru fyrstu leikir Axel Stefánssonar með A landslið kvenna. Eyjamærin Ester Óskarsdóttir var valin í þetta verkefni en hún hefur spilað 5 landsleiki fyrir Íslenska A landsliðið.

Hægt er að skoða hópinn hér

Til hamingju Ester